Hestamaðurinn Sigurbjörn Bárðarson er tekjuhæstur í flokki íþróttafólks og þjálfara samkvæmt úttekt í Tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út í gær. Mánaðartekjur hans námu 5 milljónum króna í fyrra miðað við greitt útsvar. Til samanburðar námu mánaðartekjur hans 495 þúsund krónum árið áður. Aflraunamaðurinn Hafþór Júlíus Björnsson er næst tekjuhæstur en hafði áður verið í toppsæti listans fimm ár í röð. Tekjur Hafþórs í fyrra námu að jafnaði 3,9 milljónum króna á mánuði miðað við greitt útsvar. Til samanburðar námu tekjur Hafþórs 4,9 milljónum króna á mánuði árið 2024. Í þriðja sæti listans er Halldór Árnason, fyrrverandi þjálfari Breiðabliks, með 1,9 milljónir á mánuði. Hann var þjálfari Breiðabliks þar til í október í fyrra. Fast á hæla Halldórs fylgir fyrrverandi samstarfsfélagi hans, Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, með 1,9 milljónir í mánaðartekjur. Halldór var aðstoðarþjálfari Óskars hjá Breiðabliki um nokkurra ára skeið og tók við liðinu eftir að Óskar lét af störfum í október 2023. Bardagakappinn Gunnar Nelson situr í fimmta sæti listans með 1,8 milljónir króna í mánaðartekjur á síðasta ári miðað við greitt útsvar. Formaður KSÍ, Þorvaldur Örlygsson, kemur næstur með 1,8 milljónir í tekjur á mánuði. Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari karla í knattspyrnu var einnig með 1,8 milljónir í tekjur á mánuði í fyrra. Hægt er að kaupa Tekjublaðið í forsölu hér og fá það heimsent. Að auki verður blaðið til sölu í öllum helstu verslunum landsins. Vegna útgáfu Tekjublaðsins er nauðsynlegt að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2025 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Hafa verður í huga að inni í tekjum getur verið einskiptisgreiðsla vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði.