Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar, var tekjuhæsti bæjarstjóri landsins á síðasta ári samkvæmt úttekt Tekjublaðs Frjálsrar verslunar. Tekjur hans námu að jafnaði 3,6 milljónum króna á mánuði í fyrra miðað við greitt útsvar. Árið áður námu mánaðartekjur hans 2,5 milljónum. Kristinn hefur gegnt bæjarstjórastöðunni í sveitarfélaginu óslitið frá árinu 1998. Í öðru sæti á lista yfir tekjuhæstu bæjarstjórana er Valdimar Víðisson, sem var bæjarstjóri Hafnarfjarðar þar til eftir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Mánaðartekjur hans námu 3,1 milljón króna árið 2025. Til samanburðar námu tekjur hans 2,5 milljónum á mánuði árið 2024. Fast á hæla Valdimars fylgir Jakob Björgvin S. Jakobsson, bæjarstjóri Stykkishólms, með 3,1 milljón í tekjur á mánuði í fyrra. Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, var einnig með sömu upphæð í mánaðartekjur á síðasta ári. Hægt er að kaupa Tekjublaðið í forsölu hér og fá það heimsent. Að auki verður blaðið til sölu í öllum helstu verslunum landsins. Vegna útgáfu Tekjublaðsins er nauðsynlegt að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2025 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Hafa verður í huga að inni í tekjum getur verið einskiptisgreiðsla vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði.