Landsliðshópur karla fyrir seinni hluta undankeppni heimsmeistaramótsins í körfubolta er klár. Ísland komst áfram upp úr fyrri hluta undankeppninnar með glæstum sigrum og er nú komið á næsta þrep á leið sinni í átt að HM. Þangað hefur Ísland aldrei komist áður. Craig Pedersen valdi þrettán leikmenn og verða allir helstu leikmenn með. Fyrst mætir Ísland Finnlandi í vináttulandsleik á föstudaginn. Svona er hópurinn #5 Hilmar Smári Henningsson #6 Jón Axel Guðmundsson #9 Þórir Guðmundur Þorbjarnarson #10 Elvar Már Friðriksson #12 Kári Jónsson #14 Kristinn Pálsson #15 Martin Hermannsson #16 Bragi Guðmundsson #18 Sigurður Pétursson #32 Tryggvi Snær Hlinason #34 Styrmir Snær Þrastarson #41 Bjarni Guðmann Jónsson #66 Sigtryggur Arnar Björnsson Síðan tekur alvaran við en þá mætir Ísland Serbíu og Tyrklandi í lok ágústmánaðar. Ísland mætir Serbíu ytra 28. ágúst og Tyrkjum heima 31. ágúst. Íslenska liðið æfir hér heima næstu daga. Liðin taka stig með sér úr undankeppni en Ísland er því búið að leika gegn Ítalíu og Litáen. Þrjú efstu liðin fara áfram á HM.