Ísland mætir Serbíu klukkan 18:00 annað kvöld í forkeppni HM karla í körfubolta. Um er að ræða fyrsta leik Íslands í þessari annarri umferð undankeppninnar fyrir HM á næsta ári. Ísland er í riðli með Tyrklandi, Ítalíu, Serbíu, Litáen og Bosníu en mætti Ítalíu og Litáen í fyrri umferðinni og tekur 9 stig með sér úr henni sem þýðir að liðið situr í 5. sæti riðilsins sem stendur en efstu þrjú liðin komast áfram á HM. „Auðvitað erum við ekkert saddir,“ sagði landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson um undankeppnina. „Við erum ánægðir að vera komnir hingað, það var stærsta markmiðið. Þetta er löng leið og við erum að reyna að klifra upp fjallið og vorum mjög nálægt því síðast. Það verður bara að koma í ljós núna hvort við eigum einni þriggja stiga körfu meira í vasanum til þess að koma okkur í stærstu keppni í heimi.“ Karlalandsliðið í körfubolta mætir því serbneska á útivelli annað kvöld. Leikurinn verður í beinni útsendingu á RÚV 2. Ljóst er að verkefnið verður strembið en leikmenn eru spenntir að máta sig við þá bestu. Einn sá besti í heimi Serbar, sem fengu brons á síðustu Ólympíuleikum og silfur á síðasta HM, munu tefla fram mörgum af sínum sterkustu leikmönnum, þar á meðal Nikola Jokić, einum besta körfuknattleiksmanni í heimi. Íslensku leikmennirnir eru eðlilega spenntir að máta sig við þessa miklu körfuboltaþjóð. „Það er náttúrlega bara algjör heiður að spila á móti svona leikmönnum,“ sagði Tryggvi Snær Hlinason en hann mun væntanlega hafa í nægu að snúast gegn Jokić og félögum, bæði varnar- og sóknarlega. „Þetta eru alveg ótrúlegir körfuboltamenn og í raun bara ótrúlega gaman að taka á móti einhverju svoleiðis og spila á móti þeim. En þegar maður mætir í leikinn er þetta bara eins og hver annar leikur.“ „Svo er það þannig, og það hefur sannast, að við getum komið öllum á óvart, hvenær sem er og hvar sem er.“ „Við ætlum okkur stóra hluti og þá þýðir ekkert að vera minni maður þegar þú mætir Serbíu þannig að við förum á fullri ferð.“ Prófin verða ekki mikið erfiðari Martin segir að liðið ætli sér að vinna leikinn gegn Serbíu: „Það er ekkert flóknara en það. Þetta eru náttúrlega ákveðin forréttindi og þetta er staða sem við erum búnir að vinna lengi og hart fyrir. Þetta er ekki sjálfsagður hlutur og þetta er bara stærsta próf sem hægt er að taka; að spila á móti Serbíu í Serbíu og þeir með flesta af sínum bestu leikmönnum.“ „Þannig að þetta verður mjög erfitt og í svona umhverfi eins og körfuboltaleikir í Serbíu eru í þá þurfum við að vera heldur betur tilbúnir í verkefnið. Þetta er staður sem við í íslenska körfuboltalandsliðinu erum ekki vanir að vera á í gegnum söguna. Við erum búnir að vinna fyrir þessu, eigum þetta skilið og það verður bara gaman að máta sig við þá bestu og ég tala ekki um að fá þessa heimaleiki á móti þessum þjóðum.“ Leikur Íslands og Serbíu fer fram á morgun klukkan 18:00 og verður í beinni útsendingu á RÚV 2. Stofan mun hita upp frá klukkan 17:35.