Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ásgeir: Hækkun á verðbólguvæntingum gengur til baka

Read Full Article →

Viðskipti | mbl | 19.8.2026 | 11:41 Ásgeir: Hækkun á verðbólguvæntingum gengur til baka Spurði Erna Björg hvort skilja mætti breytingu á framsýnni leiðsögn sem svo, að öðru óbreyttu og að því gefnu að spá rætist, að nefndin sé orðin sátt við taumhaldið og að toppnum sé að einhverju leyti náð í vaxtaferlinum. Samsett mynd/mbl.is/Eyþór/María Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Beint: „Eru háir stýrivextir alltaf besta svarið?“ „Algjörlega galið“ að vextir nálgist fyrra horf „Algjör óráðsía“ hjá Seðlabankanum „Megum ekki fá á okkur fleiri mörk“ Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig » Fleiri tengdar fréttir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir framsýna leiðsögn peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands hafa breyst. Segir hann breytinguna m.a. vera tilkomna vegna þess að hækkun á verðbólguvæntingum sé að ganga til baka. Í maí sagðist nefndin tilbúin til að herða taumhaldið enn frekar til þess að ná verðbólgu í markmið. Nú segir nefndin í framsýnni leiðsögn sinni að rétt hafi þótt að hækka vexti til að tryggja nægjanlegt peningalegt aðhald. Á þetta benti Erna Björg Sverrisdóttir, aðalhagfræðingur Arion banka, þegar opnað var fyrir spurningar eftir fund peningastefnunefndar í húsakynnum Seðlabankans í dag. Peningastefnunefnd ákvað að hækka stýrivexti bankans um 0,25 prósentustig. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 8%. Fjórir nefndarmenn studdu ákvörðunina en einn einn vildi halda vöxtum óbreyttum. Frétt af mbl.is „Algjörlega galið“ að vextir nálgist fyrra horf Frétt af mbl.is „Algjör óráðsía“ hjá Seðlabankanum Auglýsir eftir ábyrgð aðila vinnumarkaðarins Erna Björg spurði hvort skilja mætti breytingu á framsýnni leiðsögn sem svo, að öðru óbreyttu og að því gefnu að spá rætist, að nefndin sé orðin sátt við taumhaldið og að toppnum sé að einhverju leyti náð í vaxtaferlinu. Ásgeir sagði breytinguna m.a. vera tilkomna vegna þess að hækkun á verðbólguvæntingum væri að ganga til baka. Hann sagði þá að þótt forsenduákvæði kjarasamninga væri líklega ekki að halda liggi fyrir að kaupmáttur hefur aukist miklu meira en gert var ráð fyrir og að hann haldi áfram að aukast. „Þannig að ég auglýsi eftir ábyrgð hjá aðilum vinnumarkaðarins. Ef þeir vilja sjá lægri vexti, þá eru hlutir sem þeir geta gert. Það er til dæmis hægt að endursemja og fresta launahækkunum eða jafnvel bíða með þær. Það myndi hjálpa verulega til. Þannig að ég auglýsi eftir ábyrgð af þeirra hálfu og ef hlutirnir fara á annan veg þá auðvitað verðum við að bregðast við því. Vaxtastigið hjá okkur er náttúrulega afleiðing af því sem aðrir gera úti í þjóðfélaginu. Ákvörðun á vinnumarkaði, ákvörðun í pólitík, ákvörðun í alls konar öðrum og ákveðnum kerfum. Við fáum þetta allt til okkar og bregðumst við með því að hækka og lækka vexti.“ Frétt af mbl.is „Megum ekki fá á okkur fleiri mörk“ Hægir greinilega á launavexti Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu, bætti því við að greinilega væri að hægja á launavexti. Peningastefnunefnd búist við að verðbólga hjaðni, en slær hún þann varnagla að ef kjarasamningar setja hlutina í uppnám þá bregðist nefndin við. „Við erum að gera ráð fyrir að kjarasamningurinn opnist en að það verði hóflegar breytingar. Ef það verður öðruvísi þá auðvitað verður brugðist við. Frétt af mbl.is Beint: Ásgeir fer yfir stöðu mála Frétt af mbl.is Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Beint: „Eru háir stýrivextir alltaf besta svarið?“ „Algjörlega galið“ að vextir nálgist fyrra horf „Algjör óráðsía“ hjá Seðlabankanum „Megum ekki fá á okkur fleiri mörk“ Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Kemur hatrið frá vinstri? Sigurður Már Jónsson Jón Baldvin og ólígarkarnir Fleira áhugavert „Megum ekki fá á okkur fleiri mörk“ Ekkert hægt að segja um orsök skemmdanna Stærsta Menningarnótt til þessa „Við ætlum að gera meira hér í Keflavík“ Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig „Algjör óráðsía“ hjá Seðlabankanum Tryggir 3,4 milljóna evra fjármögnun Beint: Ásgeir fer yfir stöðu mála Fjórtán forstjórar með yfir tíu milljónir á mánuði „Góðar fréttir í baráttunni við verðbólgu“ Vaxtahækkun líklegust að mati stærstu bankanna Telur áhrifin tímabundin Tæplega 9 milljarða hagnaður Bókfært virði Kerecis lækkað um 57 milljarða króna Fjórtán forstjórar með yfir tíu milljónir á mánuði Bókfært virði Kerecis lækkað um 57 milljarða króna „Góðar fréttir í baráttunni við verðbólgu“ Aukinn verkefnaskortur hjá verktökum og hönnuðum Sigurður Arnar ráðinn framkvæmdastjóri María Klara gengur til liðs við Athygli Tæplega 9 milljarða hagnaður Telur áhrifin tímabundin Vaxtahækkun líklegust að mati stærstu bankanna Guðmundur Fertram fær nýtt hlutverk hjá Coloplast Fjórtán forstjórar með yfir tíu milljónir á mánuði Segjast nú geta boðið lægra verð í matvöruverslunum Breytingar hjá Bláa lóninu Aukinn verkefnaskortur hjá verktökum og hönnuðum Brugðust þegar mest á reyndi Bankinn finnur fyrir samkeppni Spá mestu verðbólgu síðan 2024 Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Ofar Getur farið á hvorn veginn sem er Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Pistlar » Sigurður Már Jónsson Kemur hatrið frá vinstri? Sigurður Már Jónsson Jón Baldvin og ólígarkarnir Fleira áhugavert „Við ætlum að gera meira hér í Keflavík“ Flutningabíll valt á hliðina Játaði skýlaust sök: „Mér þykir þetta leitt“ Vaxtahækkun líklegust að mati stærstu bankanna Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig „Algjör óráðsía“ hjá Seðlabankanum Tryggir 3,4 milljóna evra fjármögnun Beint: Ásgeir fer yfir stöðu mála Fjórtán forstjórar með yfir tíu milljónir á mánuði „Góðar fréttir í baráttunni við verðbólgu“ Vaxtahækkun líklegust að mati stærstu bankanna Telur áhrifin tímabundin Tæplega 9 milljarða hagnaður Bókfært virði Kerecis lækkað um 57 milljarða króna Fjórtán forstjórar með yfir tíu milljónir á mánuði Bókfært virði Kerecis lækkað um 57 milljarða króna „Góðar fréttir í baráttunni við verðbólgu“ Aukinn verkefnaskortur hjá verktökum og hönnuðum Sigurður Arnar ráðinn framkvæmdastjóri María Klara gengur til liðs við Athygli Tæplega 9 milljarða hagnaður Telur áhrifin tímabundin Vaxtahækkun líklegust að mati stærstu bankanna Guðmundur Fertram fær nýtt hlutverk hjá Coloplast Fjórtán forstjórar með yfir tíu milljónir á mánuði Segjast nú geta boðið lægra verð í matvöruverslunum Breytingar hjá Bláa lóninu Aukinn verkefnaskortur hjá verktökum og hönnuðum Brugðust þegar mest á reyndi Bankinn finnur fyrir samkeppni Spá mestu verðbólgu síðan 2024 Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Ofar Getur farið á hvorn veginn sem er Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig

Share this article