Innlent | mbl | 19.8.2026 | 13:21 Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóri. mbl.is/Eyþór Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Beint: „Eru háir stýrivextir alltaf besta svarið?“ „Algjörlega galið“ að vextir nálgist fyrra horf Ásgeir: Hækkun á verðbólguvæntingum gengur til baka „Algjör óráðsía“ hjá Seðlabankanum „Megum ekki fá á okkur fleiri mörk“ » Fleiri tengdar fréttir „Það er mjög mikilvægt að þessir aðilar taki ábyrgð á eigin gjörðum, að þeir varpi ekki ábyrgð yfir á einhverja aðra því þeir eru hér gerendur í málinu,“ segir seðlabankastjóri um gagnrýni frá aðilum vinnumarkaðarins. Peningastefnunefnd Seðlabankans ákvað að hækka stýrivexti bankans um 0,25 prósentustig. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 8%. Um er að ræða þriðju vaxtahækkunina í röð. Frétt af mbl.is Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Búast við hækkandi verðbólgu „Það sem er búið að gerast á þessu ári er það að verðbólga hækkaði verulega og fór yfir fimm prósent og við erum að búast við því að hún geti hækkað meira á næstu mánuðum,“ segir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri í samtali við mbl.is þegar hann er inntur eftir ástæðum fyrir hækkuninni. „Aðalástæðan er hækkandi verð á sköttum og opinberri þjónustu og síðan náttúrlega staðan í Mið-Austurlöndum og margt því tengt, og við sjáum að verðbólguvæntingar eru að hækka.“ Ásgeir segir þó nefndina telja að síðustu vaxtahækkanir hafi skilað árangri. Undirliggjandi verðbólga hafi t.a.m. ekki hækkað og því sé vonast til að ástandið gangi yfir, en sjálf spáir nefndin því að verðbólga hjaðni eftir áramót. Frétt af mbl.is Ásgeir: Hækkun á verðbólguvæntingum gengur til baka Boltinn hjá aðilum vinnumarkaðsins Hækkun peningastefnunefndarinnar hefur ekki sloppið við gagnrýni, þá sérstaklega í ljósi viðbragða við þeim forsendubresti sem líklega verði í kjarasamningunum sem gerðir voru árið 2024. Frá fundinum í morgun. mbl.is/Eyþór Spurður um þá gagnrýni segir Ásgeir mikilvægt að hafa í huga að aðilar vinnumarkaðarins geti gert ákveðna hluti til þess að lækka verðbólgu sem Seðlabankinn gæti þá mætt með vaxtalækkun. „Það er þá bara einfaldlega að sýna skynsemi á vinnumarkaði,“ segir Ásgeir og bendir á að laun hafi hækkað hér á landi um 6-8 prósent á ári. „Ég held að það sé bara mjög mikilvægt að ASÍ og aðrir, [eins og t.d.] framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, hugsi um að yrkja sinn eigin garð áður en þeir fara að tala um aðra. Núna er boltinn hjá þeim.“ Frétt af mbl.is „Algjör óráðsía“ hjá Seðlabankanum Frétt af mbl.is „Algjörlega galið“ að vextir nálgist fyrra horf „Taki ábyrgð á eigin gjörðum“ Hann segir líklegan forsendubrest kjarasamninganna vera áhyggjuefni og að mikilvægt sé að aðilar vinnumarkaðsins taki ábyrgð á eigin gjörðum. „Það er mjög mikilvægt að þessir aðilar taki ábyrgð á eigin gjörðum, að þeir varpi ekki ábyrgð yfir á einhverja aðra því þeir eru hér gerendur í málinu.“ Snýst um að kunna sér hóf Ásgeir segir margt hafa tekist mjög vel til og að lífskjör þjóðarinnar hafi batnað umtalsvert. „Ég held að það sé varla hægt að finna tímabil í Íslandssögunni þar sem kaupmáttur og lífskjör hafa batnað jafn mikið á eins skömmum tíma. Að einhverju leyti höfum við farið þarna fram úr okkur. Það hefur leitt til þenslu, við höfum orðið að hækka vexti til þess að hagkerfið fari ekki úr böndunum, en ég vil leggja áherslu á það að allir grunninnviðir landsins og hagkerfisins eru í góðu jafnvægi og stöðugleiki gengisins sýnir innra jafnvægi í kerfinu. Skuldabréfamarkaðurinn t.d. er tiltölulega stöðugur. Kerfið býr yfir miklum innri stöðugleika þótt verðbólga sé of há. Þetta snýst bara um það að kunna sér hóf, að það sé ekki hægt að hækka laun um 6-8 prósent á hverju ári endalaust. Ef við komumst fram hjá þeirri hugsun þá held ég að við getum náð þessari verðbólgu niður tiltölulega hratt.“ Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Beint: „Eru háir stýrivextir alltaf besta svarið?“ „Algjörlega galið“ að vextir nálgist fyrra horf Ásgeir: Hækkun á verðbólguvæntingum gengur til baka „Algjör óráðsía“ hjá Seðlabankanum „Megum ekki fá á okkur fleiri mörk“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Landsliðið fyrir HM valið Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Petra Klein til liðs við Syndis Hneig niður þegar eiginkonan reifst við fyrrverandi People fjallar um draumabrúðkaup Katrínar Tönju Umræðan Aftur heim Hvað er í þessum 100 gögnum sem ég fæ ekki aðgang að? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Flutningabíll valt á hliðina „Megum ekki fá á okkur fleiri mörk“ Segist ekki hafa farið með: „Leist ekki á blikuna“ Játaði skýlaust sök: „Mér þykir þetta leitt“ Mest lesið Í gær Í vikunni Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Játaði skýlaust sök: „Mér þykir þetta leitt“ Bankinn breytti reglunun Fjarlægja nef Guðmundar Felix á morgun Flutningabíll valt á hliðina Stal ógrynni af kjúklingabringum Myndskeið: Olía lekur frá flutningabílnum Þjófnaður og líkamsárás í matvöruverslun Vilja ekki kalla saman þing til lækkunar VSK „Algjörlega galið“ að vextir nálgist fyrra horf Átta læknar með yfir fimm milljónir Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vísað úr landi eftir að hafa verið stöðvuð í akstri Alma Möller með hæstu tekjurnar á Alþingi Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu „Við fáum hann aldrei aftur til okkar“ Verð á máltíðum hækki í 1.900 kr. Tekjur forsetanna á breiðu bili „Ófremdarástand“ á íbúðamarkaði „Númer tvö, við sjálfsmorðum hann“ Skátaflokki vísað af móti „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Maðurinn sem lést var íslenskur Inga Sæland minnkar við sig Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Almyrkvinn: Streymi frá Vestfjörðum Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Nýjast á mbl.is » Landsliðið fyrir HM valið Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Petra Klein til liðs við Syndis Hneig niður þegar eiginkonan reifst við fyrrverandi People fjallar um draumabrúðkaup Katrínar Tönju Umræðan Aftur heim Hvað er í þessum 100 gögnum sem ég fæ ekki aðgang að? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Við ætlum að gera meira hér í Keflavík“ Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Flutningabíll valt á hliðina Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Mest lesið Í gær Í vikunni Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Játaði skýlaust sök: „Mér þykir þetta leitt“ Bankinn breytti reglunun Fjarlægja nef Guðmundar Felix á morgun Flutningabíll valt á hliðina Stal ógrynni af kjúklingabringum Myndskeið: Olía lekur frá flutningabílnum Þjófnaður og líkamsárás í matvöruverslun Vilja ekki kalla saman þing til lækkunar VSK „Algjörlega galið“ að vextir nálgist fyrra horf Átta læknar með yfir fimm milljónir Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vísað úr landi eftir að hafa verið stöðvuð í akstri Alma Möller með hæstu tekjurnar á Alþingi Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu „Við fáum hann aldrei aftur til okkar“ Verð á máltíðum hækki í 1.900 kr. Tekjur forsetanna á breiðu bili „Ófremdarástand“ á íbúðamarkaði „Númer tvö, við sjálfsmorðum hann“ Skátaflokki vísað af móti „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Maðurinn sem lést var íslenskur Inga Sæland minnkar við sig Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Almyrkvinn: Streymi frá Vestfjörðum Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi