Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fjögur keppa fyrir Ísland á HM í götuhlaupum

Read Full Article →

Frjálsíþróttasamband Íslands hefur tilkynnt um landsliðshóp Íslands á heimsmeistaramótinu í götuhlaupum. Baldvin Þór Magnússon keppir í 5 km hlaupi karla og þær Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir, Íris Anna Skúladóttir og Íris Dóra Snorradóttir keppa allar í hálfmaraþoni. Baldvin og Sigþóra eru úr UFA og Íris Anna og Íris Dóra eru úr FH. Mótið fer fram helgina 19. til 20. september í Kaupmannahöfn. Baldvin keppir á laugardaginn og hálfmaraþonsveitin á sunnudag. Keppt er jafnt sem einstaklingur og í þriggja manna liðakeppni í hálfmaraþoni. Þar gildir samanlagður tími hlauparanna þriggja. Langhlaupanefnd sá um valið og þar var horft á árangurslista World Athletics. Þar fá hlauparar stig og hægt er að bera mismunandi hlaupara saman.

Share this article