Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gera ekki ráð fyrir frekari vaxtahækkunum

Read Full Article →

Greiningardeildir Landsbankans og Íslandsbanka telja að vaxtahækkun Seðlabankans í dag geti markað lok vaxtahækkunarferlisins. Þótt stýrivextir hafi verið hækkaðir í 8% var tónn peningastefnunefndar mildari en á síðustu fundum. Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækkaði meginvexti um 0,25% í morgun og standa þeir nú í 8%. Þetta er þriðja vaxtahækkunin í röð frá því í mars. Sjá einnig Seðlabankinn hækkar vexti Landsbankinn segir hækkunina hafa verið í takt við sína spá og gerir ekki ráð fyrir frekari vaxtahækkunum, að því gefnu að verðbólga þróist samkvæmt spá. Bankinn bendir á að undirliggjandi verðbólga hafi ekki aukist, hægt hafi á launahækkunum og efnahagsumsvif gefið eftir, sérstaklega á vinnumarkaði. Íslandsbanki tekur í svipaðan streng og segir mestu tíðindin felast í klofningi nefndarinnar og mildari skilaboðum um framhaldið. Fjórir nefndarmenn studdu hækkunina en einn vildi halda vöxtum óbreyttum. Er það í fyrsta sinn síðan í maí 2024 sem einhver nefndarmanna vill minna vaxtataumhald en meirihluti nefndarinnar. Bankinn lýsir ákvörðuninni sem svokallaðri dovish hike , eða vaxtahækkun með mjúkum skilaboðum um framhaldið. Framsýn leiðsögn nefndarinnar er töluvert mildari en í maí, þegar hún lýsti sig tilbúna til að herða taumhaldið enn frekar. Íslandsbanki telur líklegt að vextir verði óbreyttir út árið og taki síðan að lækka undir lok næsta vetrar ef verðbólga þróast í stórum dráttum samkvæmt spá. Verðbólguhorfur til skemmri tíma hafa þó versnað. Seðlabankinn spáir nú 5,6% verðbólgu á þriðja ársfjórðungi og 5,7% á þeim fjórða, en gerir áfram ráð fyrir að hún hjaðni hratt á næsta ári. Báðir bankar leggja áherslu á að óvissan sé töluverð, meðal annars vegna opinberra gjalda, þróunar á vinnumarkaði og olíu- og hrávöruverðs. Eftir þrjár vaxtahækkanir í röð virðast líkur þó leiða að því að næsta skref Seðlabankans verði að halda vöxtum óbreyttum fremur en að ráðast í frekari hækkanir. Sjá einnig Launa- og verðhækkanir mestar hjá hinu opin­bera

Share this article