Menning | Tónlist | mbl | 19.8.2026 | 15:57 | Uppfært 16:29 Ný upplifunarsýning opnuð í Hörpu Þorsteinn Jóhannesson, Hildur Harðardóttir, Axel Hallkell Jóhannesson og Ingvi Jökull Logason eru hluti teymisins að baki WIM, The World of Icelandi Music eða Heimur íslenskrar tónlistar. Ljósmynd/Sunna Ben Setja bókamerki Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri, opnaði í gær með formlegum hætti sýninguna Heimur íslenskrar tónlistar, The World of Icelandic Music, í Hörpu. „Nýja sýningin leiðir gesti í gegnum sögu og þróun íslenskrar tónlistar og varpar ljósi á þau áhrif sem náttúra, saga og samfélagsbreytingar hafa haft á tónlist og menningu þjóðarinnar frá landnámi til dagsins í dag,“ segir í fréttatilkynningu frá aðstandendum sýningarinnar. Auk borgarstjóra fluttu Svanhildur Konráðsdóttir, forstjóri Hörpu, og Þorsteinn Jóhannesson, einn eigenda og stjórnarformaður Heims íslenskrar tónlistar, ávörp. Saxófóndúettinn Sachsi (Úlfur Eldjárn) og Saxi (Eiríkur Stephenssen) flutti tvö vel valin lög við opnun sýningarinnar í Hörpu í gær. Ljósmynd/Sunna Ben Tónlistarmaðurinn Úlfur Eldjárn flutti frumsamið verk sem er hluti af hljóðheimi sýningarinnar, og einnig steig saxófóndúettinn Saxi og Sachsi á stokk við mikla hrifningu gesta. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri ávarpaði gesti og opnaði sýninguna formlega á 240. afmælisdegi Reykjavíkurborgar, 18. ágúst. Ljósmynd/Sunna Ben Tónlistararfleifðin kynnt gestum víða að úr heiminum Í ávarpi sínu sagði Hildur Björnsdóttir borgarstjóri að sýningin skapaði mikilvægt tækifæri til að miðla sögu íslenskrar tónlistar, bæði til Íslendinga og erlendra gesta. Hún sagði sýninguna jafnframt falla vel að því starfi sem Reykjavíkurborg hefur unnið að undanfarin ár við að styrkja Reykjavík sem tónlistarborg og kynna íslenskan tónlistararf fyrir umheiminum. Þá væri staðsetning sýningarinnar í Hörpu sérstaklega viðeigandi, auk þess sem tíu ára samningur um veru hennar þar endurspeglaði metnað og framtíðarsýn verkefnisins. Tónskáldið Úlfur Eldjárn lék fyrir gesti við opnunina, en hann er höfundur frumsaminnar tónlistar í sýningunni. Ljósmynd/Sunna Ben Hugmynd sem kviknaði fyrir meira en áratug „Upphaf verkefnisins má rekja um tíu ár aftur í tímann þegar Þorsteinn Jóhannesson, Axel Hallkell Jóhannesson, Jón Hrólfur Sigurjónsson og Bjarki Sveinbjörnsson hófu þróun sýningar um sögu íslenskrar tónlistar sem ætlunin var að staðsetja í Hörpu. Verkefnið komst langt á veg árið 2017 en varð ekki að veruleika á þeim tíma. Árið 2024 tóku Þorsteinn og Axel Hallkell upp þráðinn og héldu þróun sýningarinnar áfram. Árið 2025 bættust Ingvi Jökull Logason og Hildur Harðardóttir í frumkvöðlateymið, en Hildur er jafnframt framkvæmdastjóri Heims íslenskrar tónlistar. Aðrir hluthafar eru Magnús Jóhannesson og Sumarliði Dagbjartur Gústafsson. Markmið sýningarinnar er að miðla þekkingu um íslenskan tónlistararf, vekja áhuga á íslenskri tónlist og tónlistarfólki og sýna hvernig náttúra, sögulegir atburðir og samfélagsbreytingar hafa sett mark sitt á tónlist og menningu landsins,“ segir í fréttatilkynningunni. Upprifnir af gróskumiklu tónlistarlífinu hérlendis „Markmiðið er að gestir gangi út af sýningunni upplýstari og áhugasamari um íslenska tónlist. Sýningin hefur verið opin í nokkra daga til prufu og viðbrögð gesta, bæði innlendra og erlendra, hafa verið frábær. Gestir eru upprifnir af sögunni og gróskumiklu tónlistarlífi á Íslandi sem þeir upplifa á sýningunni og vilja kynna sér íslenska tónlist betur að heimsókn lokinni,“ sagði Þorsteinn Jóhannesson meðal annars í ræðu sinni. Svanhildur Konráðsdóttir, forstjóri Hörpu, ávarpaði viðstadda. Ljósmynd/Sunna Ben Ný vídd í upplifun gesta í Hörpu Svanhildur Konráðsdóttir, forstjóri Hörpu, fagnaði því við opnunina að sýningin hefði fundið sér heimili í tónlistarhúsi þjóðarinnar. „Það gleður mig alveg sérstaklega að þessi sýning skuli nú loks hafa fundið sér heimili í Hörpu. Við viljum að fólk hafi óteljandi tilefni til að koma í Hörpu – ekki aðeins þegar það á miða á tónleika eða stefnumót á ráðstefnu, heldur líka til að læra eitthvað nýtt og upplifa eitthvað óvænt. Heimur íslenskrar tónlistar bætir sannarlega við nýrri og spennandi vídd í upplifun gesta í Hörpu og styrkir um leið menningarlegt hlutverk hússins gagnvart íslensku samfélagi og aðdráttarafl þess sem áfangastaðar fyrir ferðamenn sem vilja kynnast íslenskri menningu og tónlist.“ Arnar Eggert Thoroddsen tónlistarspekingur með meiru. Ljósmynd/Sunna Ben Fjölbreyttur hópur kom að gerð sýningarinnar „Axel Hallkell Jóhannesson er hönnuður sýningarinnar. Þórarinn Eldjárn samdi texta hljóðleiðsagnar og Úlfur Eldjárn skapaði hljóðheim og frumsamda tónlist sýningarinnar. Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Heimir Ingólfsson og Þorbjörg Daphne Hall unnu að heimilda- og efnisöflun fyrir handrit og sýningu. Þorvaldur Davíð Kristjánsson, Sólveig Arnarsdóttir, Juan Camilo Roman Estrada og Elín C. H. Ramette eru meðal þeirra sem lásu hljóðleiðsögnina inn á fjölmörgum tungumálum. Gunnar Árnason sá um hljóðvinnslu og Sighvatur Ómar Kristinsson um klippingu og myndvinnslu. Sighvatur Ómar Kristinsson og Óttarr Proppé mættu á opnun sýningarinnar í Hörpu. Ljósmynd/Sunna Ben Pétur Snorrason, Leifur Björn Björnsson hjá Locatify og Ögmundur Jóhannesson komu að tæknilegri uppsetningu sýningarinnar og starfsfólk New Reality og Hér & Nú vann að gagnvirkum lausnum og grafískri hönnun. Sinfóníuhljómsveit Íslands tók þátt í gerð gagnvirkrar stöðvar þar sem gestir fá að spreyta sig á hljómsveitarstjórn. Hildur Björndóttir og Svanhildur Konráðsdóttir hlýddu á tónlistarflutning. Ljósmynd/Sunna Ben Síðast en ekki síst lögðu fjölmargir íslenskir tónlistarmenn, rétthafar og aðrir samstarfsaðilar verkefninu jafnframt lið með því að ljá sýningunni tónlist, myndefni og annað efni úr íslenskri tónlistarsögu,“ segir í fréttatilkynningunni. Sigtryggur Baldursson var kampakátur við opnunina. Ljósmynd/Sunna Ben Sýningin, sem staðsett er við aðalinngang Hörpu, er upplifunarsýningin. Þar býðst gestum hljóðleiðsögn með óteljandi tóndæmum úr sögu íslenskrar tónlistar auk þess sem fjölmargar myndir af flytjendum ber þar fyrir augu. Gestir geta einnig spreytt sig á því að reyna að stjórna Sinfóníuhljómsveit Íslands. Halldór Eldjárn og Ragnhildur Gísladóttir létu sig ekki vanta í Hörpu. Ljósmynd/Sunna Ben Hljóðleiðsögnin tekur 30 til 50 mínútur, allt eftir því hversu mörg tóndæmi gestir vilja hlusta á. Auk íslensku og ensku er boðið upp á hljóðleiðsögn á átta tungumálum. Allar nánari upplýsingar um sýninguna má nálgast á vefnum hér . Blogga um frétt Mest lesið Í gær Í vikunni „Dauðadans“ og ferð til heljar Óþelló frestað vegna veikinda aðalleikara Hayden Panettiere látin Stærstu verk Örnu til þessa Ný upplifunarsýning opnuð í Hörpu Listin að taka utan af mandarínu Gefur íslenskum söfnum á fjórða tug verka Tónlistin sem Jón hlustar á í bílnum Af raðtækni og bjölluhljómi Guðs herbergi og gleyming sorga Stærstu verk Örnu til þessa Hayden Panettiere látin Gefur íslenskum söfnum á fjórða tug verka Tónlistin sem Jón hlustar á í bílnum Listin að taka utan af mandarínu Guðs herbergi og gleyming sorga Prófaði sig áfram og fannst aðferðin æðisleg Af raðtækni og bjölluhljómi Makleg málagjöld Sækir innblástur í nærumhverfið og Íslendingasögurnar Hayden Panettiere látin Prófaði sig áfram og fannst aðferðin æðisleg Frumsýning og sonur í sömu vikunni Samkoma án rugls og rósturs Afdrifaríkt högg í Þjóðleikhúsinu Blóð, sviti og .... æla! Gefur íslenskum söfnum á fjórða tug verka Barbie í bobba? Tröllin mín eru hamingjusöm Heldur lífi í gleymdri tungu Áhugaverð viðtöl Menning Tekur tíma að byggja upp traust Menning „Við leggjum allt í sölurnar“ Menning Óvanalegt að skrifa um listgrein kvenna Menning „Eitthvað sem ýtir mér áfram“ Menning „Hér er einhvers konar pólitík í gangi“ Mest lesið Í gær Í vikunni „Dauðadans“ og ferð til heljar Óþelló frestað vegna veikinda aðalleikara Hayden Panettiere látin Stærstu verk Örnu til þessa Ný upplifunarsýning opnuð í Hörpu Listin að taka utan af mandarínu Gefur íslenskum söfnum á fjórða tug verka Tónlistin sem Jón hlustar á í bílnum Af raðtækni og bjölluhljómi Guðs herbergi og gleyming sorga Stærstu verk Örnu til þessa Hayden Panettiere látin Gefur íslenskum söfnum á fjórða tug verka Tónlistin sem Jón hlustar á í bílnum Listin að taka utan af mandarínu Guðs herbergi og gleyming sorga Prófaði sig áfram og fannst aðferðin æðisleg Af raðtækni og bjölluhljómi Makleg málagjöld Sækir innblástur í nærumhverfið og Íslendingasögurnar Hayden Panettiere látin Prófaði sig áfram og fannst aðferðin æðisleg Frumsýning og sonur í sömu vikunni Samkoma án rugls og rósturs Afdrifaríkt högg í Þjóðleikhúsinu Blóð, sviti og .... æla! Gefur íslenskum söfnum á fjórða tug verka Barbie í bobba? Tröllin mín eru hamingjusöm Heldur lífi í gleymdri tungu Áhugaverð viðtöl Menning Býður gestum að leika á landslagið Menning „Eitthvað sem ýtir mér áfram“ Menning Elskar þú mömmu þína? Menning Stærstu verk Örnu til þessa Menning „Hér er einhvers konar pólitík í gangi“