Innlent | mbl | 19.5.2026 | 20:54 Óðmenn komu saman á ný Setja bókamerki Eftir margra ára hlé kom hin gamalkunna og víðfræga hljómsveit Óðmenn aftur saman á tónlistarhátíðinni Vor á Vatnsnesi sem fór fram í Reykjanesbæ sl. laugardag. Sveitin var stofnuð í lok sjöunda áratugs síðustu aldar og kom þá sem ferskur andvari inn í íslenskt tónlistarlíf með frumsamin lög í anda bítlana. Jakob Frímann Magnússon, tónlistarmaður, segir það hafa verið töfrum líkast að fá að hlýða á tónlist sveitarinnar í lifandi flutningi á ný þar sem sveitin sé að hans mati ein sú merkasta í tónlistarsögu Keflavíkurbæjar. „Þetta er ein glæstasta hljómsveit gjörvallrar bítlabæjarsögunnar að mínu mati og í rauninni alveg frábær staðreynd að fá að að endurupplifa það,“ segir Jakob í samtali við mbl.is Hluti Óðmanna með Shady Owens. Ljósmynd/Aðsend Jóhann Helgason. Ljósmynd/Aðsend Mikil áhrif á íslenskt tónlistarlíf Jakob segir hljómsveitina hafa haft ómæld áhrif á tónlistarlíf Keflavíkur, sem þá var ein helsta miðstöð íslensks tónlistarfólks. „Þeir fluttu alveg nýjan blæ inn í íslenska tónlistarsenu, voru enda af miklum áhrifum að utan þar sem klúbbarnir á varnarsvæðinu voru þeirra helstu uppeldisstöðvar. Vor á Vatnsnesi var því alveg einstaklega falleg stund, bæði fyrir þá sem mundu eftir upphafinu sem og fyrir þá sem þarna voru í fyrsta skipti,“ segir Jakob. Söngvar Hljóma hljómuðu í flutningi eftirlifandi afkomenda þeirra. Einnig stigu á svið Sigríður Thorlacius, Sigurður Guðmundsson og Guðmundar Óskarsson úr sveitinni GÓSS sem fluttu lög Ellýjar og Vilhjálms Vilhjálmsbarna. Þá stigu á svið þeir Magnús og Jóhann og svo þeir Karl Hermannsson, Eggert Kristinsson, Rúnars Júlíussonar, Baldur Guðmundsson og Sindri Baldursson en þeim til fulltingis var söngkonan Shady Owens sem söng Ég elska alla! Valdimar sló botninn í dagskrána. Tónlistarhátíðin Vor á Vatnsnesi var haldin í tilefni af 40 ára afmæli Hótels Keflavíkur en stefnt er að því hún verði að árlegum viðburði. Magnús og Jóhann. Ljósmynd/Aðsend Fjöldi gesta sótti hátíðina. Ljósmynd/Aðsend Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Óðmenn komu saman á ný Ósk lítillar stúlku um bata Manchester City úr leik í titilbaráttunni Englandsmeistarar í fyrsta sinn í 22 ár Barnamálaráðherrar fari opinberlega með ósannindi Umræðan Kjósendur treysta Framsókn til verka Værum efnislega gengin í ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þessa meirihluta getur Hildur myndað Ávarpar landsmenn: „Það tökum við alvarlega“ HMS hafnar seinagangi og ætlar að skila áliti fljótlega Vill skoða borgarstjórn án meirihluta Mest lesið Í gær Í vikunni Hildur nýr oddviti: „Svona maður er Guðmundur“ Sló leikskólabarn í andlitið og son sinn einnig Flestir strikuðu yfir Ásdísi „Fólk er hrætt við Miðflokkinn“ Vill skoða borgarstjórn án meirihluta Sumarið kemur af fullum þunga á morgun Hildur og Pétur áttu 40 mínútna fund Hildur ekkert haft samband Hótaði að senda syni kynferðislegt myndefni Ari, Björg og Einar fús til samstarfs Andlát: Árni Tómas Ragnarsson Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Segist hafa eytt myndbandi eftir hótanir lögreglu Hættur í pólitík: „Dómurinn er fallinn“ Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Ávarpar landsmenn: „Það tökum við alvarlega“ Höfnuðu utan vegar við Breiðholtsbraut Eldur kviknaði í manni eftir afskipti lögreglu Flugi Icelandair seinkað vegna skorts á áhöfn „Þannig virðist símtalið koma frá Íslandi“ Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Nýjast á mbl.is » Óðmenn komu saman á ný Ósk lítillar stúlku um bata Manchester City úr leik í titilbaráttunni Englandsmeistarar í fyrsta sinn í 22 ár Barnamálaráðherrar fari opinberlega með ósannindi Umræðan Kjósendur treysta Framsókn til verka Værum efnislega gengin í ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vill skoða borgarstjórn án meirihluta Fundað í Grænlandsmáli: „Góður tónn“ Lögreglustjórinn: „Ekkert að sjá við fyrstu sýn“ Segir aðferðir flugmanna „sorglegar“ Mest lesið Í gær Í vikunni Hildur nýr oddviti: „Svona maður er Guðmundur“ Sló leikskólabarn í andlitið og son sinn einnig Flestir strikuðu yfir Ásdísi „Fólk er hrætt við Miðflokkinn“ Vill skoða borgarstjórn án meirihluta Sumarið kemur af fullum þunga á morgun Hildur og Pétur áttu 40 mínútna fund Hildur ekkert haft samband Hótaði að senda syni kynferðislegt myndefni Ari, Björg og Einar fús til samstarfs Andlát: Árni Tómas Ragnarsson Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Segist hafa eytt myndbandi eftir hótanir lögreglu Hættur í pólitík: „Dómurinn er fallinn“ Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Ávarpar landsmenn: „Það tökum við alvarlega“ Höfnuðu utan vegar við Breiðholtsbraut Eldur kviknaði í manni eftir afskipti lögreglu Flugi Icelandair seinkað vegna skorts á áhöfn „Þannig virðist símtalið koma frá Íslandi“ Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi