Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hlekktist á í lendingu þegar nefhjól festist ekki niðri

  • What: Plane incident at Reykjavíkurflugvöllur
  • Impact: Airport temporarily closed due to landing malfunction
Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu mm . dd . áááá – mm . dd . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 17 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Hlekkt­ist á í lend­ingu þegar nef­hjól fest­ist ekki niðri Sigrún Þuríður Runólfsdóttir Flugvélin verður færð þegar Rannsóknarnefnd flugslysa hefur skoðað hana. Aðsend Eins hreyfils æfingar- og listflugvél hlekktist á í lendingu á sjötta tímanum þegar nefhjól vélarinnar festist ekki niðri í lendingu. Óvissustig var boðað klukkan 16:48 vegna tilkynningar frá flugmanni vélarinnar um bilun í lendigarbúnaði. Lögregla var kölluð út og slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu sendi dælubíl á vettvang. Vélin stöðvaðist á svokölluðum krossi, þar sem tvær flugbrautir mætast. Báðum brautum var lokað í kjölfarið. Tveir voru um borð í vélinni en engan sakaði. Þau sem eiga flug til eða frá Reykjavíkurflugvelli í kvöld eru beðin um að fylgjast með á síðu flugvallarins, einhver seinkun gæti orðið. Fyrir 14 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína Ísra­els­her við­ur­kenn­ir að hafa skotið á fimm ára stúlku og fjöl­skyldu hennar Ísraelsher hefur viðurkennt að hafa skotið á fimm ára stúlku og fjölskyldu hennar þegar hún flúði innrás hersins inn í hverfi í Gazaborg. Hljóðupptaka af stúlkunni grátbiðja um hjálp eftir árásina fór eins og eldur í sinu um heiminn. Fyrir 28 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Landbúnaður 4 af 5 stærstu slát­ur­hús­un­um sækj­ast eftir Halal vottun í kom­andi slát­ur­tíð Fjögur af fimm stærstu sláturhúsum landsins ætla að sækjast eftir Halal vottun í komandi sláturtíð. SS hættir að sækjast eftir vottuninni og segir ástæðurnar vera markaðslegar. Fyrir 56 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Ráðu­neyt­ið upp­fær­ir mat á fram­lagi til ESB við aðild Utanríkisráðuneytið segir að framlag Íslands til ESB, að frádregnum kostnaði við EES-samstarfið, gæti verið á bilinu átta til þrettán milljarðar. Í júní hélt ráðuneytið því fram að það væri á bilinu tveir til sjö milljarðar. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Fótbolti Eiður Smári í þjálf­arateymi KA Samkomulag hefur náðst á milli KA og Eiðs Smára Guðjohnsen að Eiður muni koma að þjálfun liðsins í Bestu deild karla í fótbolta með Hallgrími Jónassyni. KA er í fallsæti og fram undan er því barátta um að halda sætinu í deildinni. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Bretland Hætta notkun and­lits­grein­ing­ar eftir að við­skipta­vin­ur var rang­lega sak­að­ur um þjófn­að Stórmarkaðurinn Sainsbury's hefur hætt notkun andlitsgreiningar í einu af útibúum sínum í Lundúnum í Bretlandi. Viðskiptavinur var ranglega sakaður um þjófnað af gervigreindinni og var beðinn um að yfirgefa verslunina. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Gæslu­varð­hald fram­lengt vegna mann­dráps á Kárs­nesi Gæsluvarðhald yfir tveimur mönnum sem grunaðir eru um að hafa banað manni á Kársnesi 9. ágúst hefur verið framlengt fram í næstu viku. Fjórir sæta gæsluvarðhaldi vegna málsins, tveir á Íslandi, einn á Spáni og einn í Póllandi. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Skora á Al­þingi að skýra ramma um áfeng­is­sölu Erla María Markúsdóttir SVÞ og sérvöruverslanir telja brýnt að Alþingi setji skýrar og samræmdar reglur um áfengissölu. Ruv.is / Anton Brink Samtök verslunar og þjónustu ásamt sjálfstæðum sérvöruverslunum með áfengi skora á Alþingismenn að setja skýran lagaramma um vefverslun með áfengi. Þrjú fyrirtæki sem selja áfengi í gegnum netið hafa sætt ákærum og eitt hefur verið sakfellt. Í tilkynningu segir að neytendur hafi þegar gert upp hug sinn og vefverslun með áfengi sé orðin hluti af íslenskum veruleika. Samkvæmt könnunum hefur um þriðjungur landsmanna keypt áfengi í gegnum vefverslun. Brýnt sé að Alþingi viðurkenni þessa stöðu og tryggi ábyrga starfsemi með virku eftirliti og skýrum reglum um starfsemina - til dæmis leyfisveitingar, opnunartíma, staðsetningar og aðgengi. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Forseti Íslands For­seta­hjón­in í op­in­berri heim­sókn í Eist­landi​ Þriggja daga opinber heimsókn forsetahjónanna til Eistlands hófst í morgun. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi OpenAI dregur úr þjálf­un eftir að gervi­greind­ar­lík­ön gerðu tölvu­árás óum­beð­in OpenAI dregur úr þjálfun gervigreindarlíkanna eftir atvik í sumar þar sem nokkur þeirra gerðu tölvuárás óumbeðin. Unnið sé að því að gera líkönin móttækilegri fyrir mennsku eftirliti. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Útvarp Sagði skilið við Bylgj­una eftir spenn­andi at­vinnu­til­boð Kristján Kristjánsson segir starfslokin á Bylgjunni ekki hafa haft langan aðdraganda. Hann muni tilkynna á næstu dögum hvaða starf taki við. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður „Má ætla“ að aðild hefði ekki áhrif á veiði­heim­ild­ir stað­bund­inna fisk­stofna Í nýrri álitsgerð um forræði á náttúruauðlindum í ljósi reglna Evrópuréttar segir að ætla megi að veiðiheimildir á staðbundnum stofnum við Ísland verði áfram í höndum Íslendinga vegna veiðireynslu þótt landið gengi í ESB. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Múlaþing Þurfa fjár­magn svo Vala­skjálf verði áfram sam­komu­sal­ur Sögufrægur salur í félagsheimilinu Valaskjálf á Egilsstöðum verður að gistirými, nema sveitarfélagið hlaupi undir bagga, segir eigandinn. Íbúar á Héraði vonast til að hægt verði að bjarga málum. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Meta gerði börn vís­vit­andi háð In­sta­gram og Fac­e­book Fulltrúar ríkja sem höfðuðu mál gegn tæknirisanum Meta, sem rekur Instagram og Facebook, segja fyrirtækið hafa gert börn vísvitandi háð samfélagsmiðlunum. Lögfræðingur fyrirtækisins segir engar rannsóknir sýna fram á fíkn í samfélagsmiðla. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti Jokic bíður – En af hverju er Ísland að keppa æf­inga­leik? Landsliðsþjálfarinn í körfubolta, Craig Pedersen, ræddi landsleikina þrjá í ágúst. Ísland mætir sterkum liðum Tyrklands og Serbíu. Ljóst er að stórstjarnan Jokic verður með Serbíu. En fyrst leikur Ísland sjaldgæfan æfingaleik. Af hverju? Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar „Mig lang­aði bara að komast burt frá þessu“ Bróðir Andra Más Mortensen Birgissonar treysti sér ekki til að ljúka skýrslutöku í dag, á þriðja degi aðalmeðferðar í Reykholtsmálinu. Hann bar fyrir sig minnisleysi að miklu leyti en kvaðst ekki hafa beitt brotaþola ofbeldi. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Hlaup Fjögur keppa fyrir Ísland á HM í götu­hlaup­um Langhlaupanefnd Frjálsíþróttasambands Íslands hefur valið fjóra þátttakendur sem keppa fyrir Íslands höjnd á heimsmeistaramótinu í götuhlaupum. Íslendingar keppa í 5 km hlaupi og hálfmaraþoni. Fyrir 4 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Klassísk tónlist Ungar von­ar­stjörn­ur hvetja klass­íka hljóð­færa­leik­ara til að fylgja ekki alltaf fyr­ir­mæl­um Ásta Dóra Finnsdóttir og María Qing Sigríðardóttir hafa báðar leikið einleik með fleiri en einni sinfóníuhljómsveit þrátt fyrir að vera rétt um tvítugt. Báðar búa þær erlendis en hafa spilað fyrir íslenska tónleikagesti í sumar. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Austurland Grip­inn við hrein­dýra­veið­ar án leið­sögu­manns Eftirlitsmaður Náttúruverndarstofnunar uppgötvaði ólöglegar hreindýraveiðar eftir ábendingu í síðustu viku. Rannsókn málsins er langt komin hjá lögreglunni á Austurlandi. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Úkraína Nýir ráð­herr­ar og hús­leit vegna spill­ingar­rann­sókn­ar Úkraínska þingið samþykkti í dag tilnefningar Zelenskys forseta í embætti utanríkis- og varnarmálaráðherra. Spillingarrannsóknarstofnun landsins réðst einnig í húsleit í morgun. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar „Ef ég fer í black­out þá drep ég hann“ Fleiri upptökur úr símtæki Andra Más Mortensen Birgissonar, sem ákærður er í Reykholtsmálinu, voru spilaðar í dag á þriðja degi aðalmeðferðar. Á þeim virðist sem svo að hann hafi ætlað að hafa frekari fjármuni af brotaþola. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Færri hefja nám í lög­reglu­fræði Sextíu og sjö hefja nám í lögreglufræði við Háskólann á Akureyri í haust, tæplega þriðjungi færri en í fyrra. Fjármagn skortir til þess að fara í markaðsátak, segir forstöðumaður mennta- og starfsþróunarseturs lögreglu. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Náttúruvá Mikil gas­meng­un fylgir jök­ul­hlaupi í Múla­kvísl Mikil gasmengun fylgir litlu jökulhlaupi í Múlakvísl. Því getur verið varhugavert að staldra við nálægt ánni eða vera nálægt upptökum hennar við jökuljaðar Kötlujökuls. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Verk­taki líkir vaxta­fyr­ir­komu­lag­inu við víta­hring Forstjóra ÞG Verks þykir sýnt að vaxtastýringartækið virki ekki til að halda niðri þenslu og einkaneyslu í verðtryggðu peningakerfi. Stýrivaxtahækkunin í morgun kostar fyrirtæki hans um 100 milljónir aukalega á ári í vaxtagreiðslur. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Úkraína Fyrr­ver­andi varn­ar­mála­ráð­herra vill for­seta­kosn­ing­ar Fyrrverandi varnarmálaráðherra Úkraínu, sem var leystur frá störfum nýlega, vill að Úkraínumenn gangi til forsetakosninga. Þetta er talin mesta áskorunin við forsetaembætti Zelenskys frá upphafi allsherjarinnrásar Rússa fyrir fjórum árum. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Stýri­vext­ir hækk­að­ir um 0,25 pró­sentu­stig Peningastefnunefnd Seðlabankans hækkaði í morgun stýrivexti um 0,25 prósentustig, úr 7,75% í 8%. Seðlabankinn gerir ráð fyrir að verðbólga aukist enn frekar á næstu mánuðum en hjaðni á næsta ári. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Boða allt að 70% hækkun á mál­tíð­um fyrir eldri borg­ara Verð á máltíðum fyrir eldri borgara í Reykjavík hækkar um allt að rúmlega sjötíu prósent ef tillögur fulltrúa meirihlutans í velferðarráði ná fram að ganga. Formaður ráðsins skellir skuldinni á fyrri borgarstjórn. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Flutn­inga­bíll valt í Ár­túns­brekku Flutningabíll valt við mislægu gatnamótin í Ártúnsbrekku í morgun. Aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir taka dágóðan tíma að rétta flutningabílinn af og koma umferð í venjulegt horf. Veginum verður lokað í skamma stund. Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti 16 ára verð­laun­uð með lands­liðs­sæti Hópur kvennalandsliðsins í körfubolta fyrir æfingaleiki gegn Portúgal hefur veri

Share this article