- What: American Airlines reintroduces in-flight screens
- Impact: Passengers on domestic flights in the US
Flugfélagið American Airlines hefur ákveðið að setja skjái aftur í sætisbök flugvéla sinna í innanlandsflugi í Bandaríkjunum. Á vef BBC segir að ákvörðunin sé hluti af umfangsmikilli fjárfestingu flugfélagsins í farþegarýmum sem var kynnt í vikunni. Samhliða því hyggst flugfélagið fjölga sætum á dýrari farrýmum með það að markmiði að bæta upplifun farþega og auka tekjur. American Airlines hefur undanfarinn áratug fjarlægt skjái úr stórum hluta Boeing 737- og Airbus A320-flota félagsins. Flugfélagið taldi að flestir farþegar kysu frekar að horfa á afþreyingarefni í eigin tækjum en skjái í sætisbökum, sem juku þyngd vélanna og viðhaldskostnað. Sjá einnig United hættir að eltast við American Stefnan hefur hins vegar sætt gagnrýni frá farþegum sem nefndu aukið álag á rafhlöður eigin tækja, óþægilega staðsetningu við áhorf og óstöðuga nettengingu um borð. Samkeppnisaðilar á borð við Delta Air Lines og United Airlines hafa einnig fjárfest verulega í afþreyingarkerfum um borð. Tækniframfarir hafa einnig gert flugfélögum auðveldara að réttlæta fjárfestinguna en nýir skjáir eru léttari, nota minni orku og eru ódýrari í uppsetningu en þeir gömlu sem voru um borð í vélunum.