Innlent | mbl | 19.8.2026 | 20:40 Margra ára rekstrartap hins opinbera þrýst á gjaldhækkanir Seðlabanki Íslands. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Indó hækkar vexti Svona getur vaxtahækkunin komið við húsnæðislánin Gleðjast yfir eigin vangetu „Fullkomið getuleysi í efnahagsmálum“ „Ég hef aðeins áhyggjur af því“ » Fleiri tengdar fréttir Hefðu gjaldhækkanir hins opinbera verið í takt við verðbólgumarkmið hefði bæði verðbólga mælst lægri um þessar mundir og forsenduákvæði kjarasamninga mögulega staðist síðar í mánuðinum. Þetta segir Konráð S. Guðjónsson hagfræðingur í samtali við mbl.is en úr því sem komið er telur hann hins vegar útilokað að það gerist. Peningastefnunefnd Seðlabankans kynnti í dag hækkun stýrivaxta bankans um 0,25 prósentustig. Meginvextir bankans verða því 8%. Um er að ræða þriðju vaxtahækkunina í röð. Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóri segir hækkandi verð á sköttum og opinberri þjónustu vera aðalástæðuna fyrir hækkandi verðbólgu ásamt stöðunni í Mið-Austurlöndum. Frétt af mbl.is Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Hækkun vörugjalda á bílum illa ígrunduð og vanmetin Konráð S. Guðjónsson segir að þrátt fyrir að aðrir þættir spili inn í hækkandi verðbólgu liggi fyrir að hækkanir á sköttum og vörugjöldum hafi verið umfram verðbólgumarkmið. Nefnir hann þá sem dæmi vörugjöld á bíla sem hækkuðu um síðustu áramót. Sú hækkun hafi verið afskaplega illa ígrunduð og vanmetin, fyrir utan það að hafa verið kynnt með stuttum fyrirvara. Segir hann augljóst að hækkunin hafi ekki heppnast eins og ætlast var til. Segir hann að verðbólgumælingin væri nú lægri sem því nemur ef þau vörugjöld hefðu verið óbreytt. Hann bendir á að ýmsar aðrar hækkanir hafi verið á vegum hins opinbera, til dæmis á hitaveitu, og að fleiri hækkanir eigi eftir að koma inn. „Það er hækkun á heilsugæslu, hækkun á skráningargjöldum háskólans og þetta safnast þegar saman kemur og ef maður skoðar hækkanir á opinberri þjónustu og leiðréttir fyrir þessari kerfisbreytingu og kílómetragjöldunum þá eru hækkanir á ákveðnum liðum í vísitölunni meiri en verðbólgan sjálf,“ segir Konráð. Konráð S. Guðjónsson hagfræðingur. mbl.is/María Eðlilegt að þrýstingur myndist Hann segir náttúrulegt að þrýstingur myndist á alls kyns gjaldhækkanir þegar ríkið hefur verið rekið öfugu megin við núllið um margra ára skeið. „Svo á sér stað almennur verðbólguþrýstingur og kjarasamningshækkanir og svo framvegis sem hefur áhrif á hið opinbera rétt eins og annars staðar, þannig það er í raun og veru það sem við erum að sjá.“ Allt í allt megi segja að ef verðhækkanir hins opinbera hefðu verið í takt við verðbólgumarkmið væri verðbólgan lægri og forsenduákveðin kjarasamninga hefðu mögulega getað staðist síðar í mánuðinum. „Eins og verðbólgan mældist í júlí (5,3%) og miðað við spár er hins vegar útilokað að það gerist.“ Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Indó hækkar vexti Svona getur vaxtahækkunin komið við húsnæðislánin Gleðjast yfir eigin vangetu „Fullkomið getuleysi í efnahagsmálum“ „Ég hef aðeins áhyggjur af því“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Mikill liðsstyrkur til Íslandsmeistaranna Indó hækkar vexti Margra ára rekstrartap hins opinbera þrýst á gjaldhækkanir Orðinn leikmaður nýliðanna Aðstoða grunnskólabörn í Reykjavík við heimanám Umræðan Aftur heim Féll Ódysseifur í freistni? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Víða léttskýjað en þokuloft við ströndina „Megum ekki fá á okkur fleiri mörk“ Kristrún skipt um skoðun Mest lesið Í gær Í vikunni Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Játaði skýlaust sök: „Mér þykir þetta leitt“ Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Fjarlægja nef Guðmundar Felix á morgun Stal ógrynni af kjúklingabringum Bankinn breytti reglunun Flutningabíll valt á hliðina Myndskeið: Olía lekur frá flutningabílnum Hlekktist á í lendingu: Reykjavíkurflugvöllur lokaður Átta læknar með yfir fimm milljónir Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vísað úr landi eftir að hafa verið stöðvuð í akstri Alma Möller með hæstu tekjurnar á Alþingi Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu „Við fáum hann aldrei aftur til okkar“ Verð á máltíðum hækki í 1.900 kr. Tekjur forsetanna á breiðu bili „Ófremdarástand“ á íbúðamarkaði „Númer tvö, við sjálfsmorðum hann“ Skátaflokki vísað af móti Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Maðurinn sem lést var íslenskur Inga Sæland minnkar við sig Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Almyrkvinn: Streymi frá Vestfjörðum Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Nýjast á mbl.is » Mikill liðsstyrkur til Íslandsmeistaranna Indó hækkar vexti Margra ára rekstrartap hins opinbera þrýst á gjaldhækkanir Orðinn leikmaður nýliðanna Aðstoða grunnskólabörn í Reykjavík við heimanám Umræðan Aftur heim Féll Ódysseifur í freistni? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Fullkomið getuleysi í efnahagsmálum“ Myndskeið: Olía lekur frá flutningabílnum Kristrún skipt um skoðun Víða léttskýjað en þokuloft við ströndina Mest lesið Í gær Í vikunni Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Játaði skýlaust sök: „Mér þykir þetta leitt“ Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Fjarlægja nef Guðmundar Felix á morgun Stal ógrynni af kjúklingabringum Bankinn breytti reglunun Flutningabíll valt á hliðina Myndskeið: Olía lekur frá flutningabílnum Hlekktist á í lendingu: Reykjavíkurflugvöllur lokaður Átta læknar með yfir fimm milljónir Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vísað úr landi eftir að hafa verið stöðvuð í akstri Alma Möller með hæstu tekjurnar á Alþingi Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu „Við fáum hann aldrei aftur til okkar“ Verð á máltíðum hækki í 1.900 kr. Tekjur forsetanna á breiðu bili „Ófremdarástand“ á íbúðamarkaði „Númer tvö, við sjálfsmorðum hann“ Skátaflokki vísað af móti Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Maðurinn sem lést var íslenskur Inga Sæland minnkar við sig Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Almyrkvinn: Streymi frá Vestfjörðum Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi