Innlent | Morgunblaðið | 20.8.2026 | 6:30 Hilmar Veigar: Það trúir enginn á Evrópu Nei Hilmar Veigar flutti erindi á opnum fundi Áfram Ísland í gær þar sem hann færði rök fyrir því að fyrirtæki í ESB mættu muna sinn fífil fegri. Morgunblaðið/Karítas Markús Ívar Halldórsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Segja umsamin ákvæði óáreiðanleg „Fullkomið getuleysi í efnahagsmálum“ „Svigrúm fyrir almenna skynsemi“ Ráðuneytið leiðréttir ESB-gjöld Kristrún skipt um skoðun » Fleiri tengdar fréttir „Núna er ESB minna en Bandaríkin og minna en Kína ef horft er til kaupmáttarleiðréttrar landsframleiðslu,“ segir Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri Fenris Creations, í samtali við Morgunblaðið. Hilmar flutti ræðu á fundi Áfram Ísland í Grósku í gær þar sem nýsköpun var í brennidepli. Fjallaði hann meðal annars um nýsköpun og almennt um fyrirtækjarekstur innan Evrópusambandsins. Hilmar bendir á að árið 2014 hafi ESB verið stærsta hagkerfi í heimi en þá var Bretland ennþá inni. Hilmar talaði um mikilvægi þess að horfa til verðmætasköpunar á hverri vinnustund því þá væri tekið tillit til atriða eins og styttingar vinnuvikunnar, starfsmanna í óvirkni og fleira. „Þar er ESB í 7%, Ísland í 12% og Bandaríkin í 18%, sem er nú ansi mikill munur og sýnir hvað ESB er þarna langt á eftir.“ Hilmar segir langstærsta áfellisdóm yfir ESB vera hvernig fyrirtækjum gengur innan sambandsins heilt yfir. Árið 2016 voru tæp 20 prósent af markaðsvirði hundrað verðmætustu fyrirtækja í heiminum innan ESB, nú hefur sú tala lækkað niður í átta prósent. Frétt af mbl.is „Svigrúm fyrir almenna skynsemi“ Ekkert fyrirtæki innan ESB-ríkis á topp tíu listanum „Það er ekkert fyrirtæki á topp tíu listanum yfir stærstu fyrirtæki í heiminum innan ESB. Fyrsta fyrirtækið sem er innan ESB er hið ótrúlega hollenska fyrirtæki ASML, sem er í 20. sæti,“ segir Hilmar. Hann bætir við að forstjóri þess fyrirtækis hafi núna í sumar biðlað til ESB um að róa sig í miðstýringu og skrifræði. „Honum líður ekki vel þarna,“ segir Hilmar. „Árið 2007 voru 46 evrópsk fyrirtæki á topp 100 listanum í heiminum, núna eru þau 16,“ segir hann og bendir á að á tímabilinu 2008 til 2021 hafi 41 „einhyrningur“ flutt höfuðstöðvar sínar frá ESB, mestmegnis til Bandaríkjanna. Frétt af mbl.is „Fullkomið getuleysi í efnahagsmálum“ Athyglisbrestur að kíkja í pakkann Hann bendir einnig á að evrópsk heimili fjárfesti á ári hverju fyrir 300 milljarða evra utan ESB, mest í Bandaríkjunum. Slíkt hið sama má segja um íslensku lífeyrissjóðina en langstærstur hluti erlendra fjárfestinga þeirra er í amerískri nýsköpun að sögn Hilmars. „Það trúir í rauninni enginn á Evrópu, í það minnsta ekki nægilega mikið til að fjárfesta fyrir peningana sína þar.“ Hilmar segir ljóst að allir séu sammála um hverju þetta sé að kenna, hvort sem það séu fyrirtækin sjálf eða Draghi-skýrslan, það er regluverkið. „Ég kalla þetta regluverk, eins og bakverk,“ segir Hilmar síðan í gríni. Það er mat Hilmars að þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst standi tæpt. Niðurstöðurnar geti fallið á hvorn veginn sem er. Hann segist þó mjög ósammála því að hægt sé að „kíkja í einhvern pakka og það kosti ekki neitt“. „Það kostar mikla einbeitingu og athygli og reynsla mín af fyrirtækjarekstri er sú að maður á að sýna því athygli sem skiptir máli og akkúrat núna eigum við öll að einbeita okkur að verðmætasköpun og að koma upp hagvexti aftur,“ segir Hilmar. „Hann er að falla niður sem er ekki gott og það þarf að grípa strax til aðgerða og að sjálfsögðu nýta þann styrk sem verður til til þess að ná niður verðbólgu og vöxtum.“ Segir hann það að „kíkja í einhvern pakka“ núna ekki vera neitt nema athyglisbrest og mælir gegn því að þjóðin fari þá leið. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Ísland og ESB Segja umsamin ákvæði óáreiðanleg „Fullkomið getuleysi í efnahagsmálum“ „Svigrúm fyrir almenna skynsemi“ Ráðuneytið leiðréttir ESB-gjöld Kristrún skipt um skoðun » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Nýja Spider-Man myndin gæti fært Holland 100 milljónir dala Ráðast í átak gegn veikindafjarvistum Ástríðufullur og skapandi Hilmar Veigar: Það trúir enginn á Evrópu Prótínríkur Stracciatella-ís í Ninja Creami Umræðan Varnir Íslands eru traustar Hvers virði er fullveldið? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Flugvöllurinn opnaður aftur Flutningabíll valt á hliðina Atburðir í móðu: „Hann átti bara að fara á spítala“ ÍE afhjúpar áður óþekkta áhættu á Parkinsons Mest lesið Í gær Í vikunni Halldóra tekjuhæst sveitastjórnarmanna Eldur á iðnaðarsvæði á Völlunum Óróapúlsar undir Mýrdalsjökli Bíða þess enn að lögregla útskýri allar beyglurnar á bílnum Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Flugvöllurinn opnaður aftur Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Hlekktist á í lendingu: Reykjavíkurflugvöllur lokaður Játaði skýlaust sök: „Mér þykir þetta leitt“ Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Játaði skýlaust sök: „Mér þykir þetta leitt“ Fjarlægja nef Guðmundar Felix á morgun Stal ógrynni af kjúklingabringum Bankinn breytti reglunun Hlekktist á í lendingu: Reykjavíkurflugvöllur lokaður Flutningabíll valt á hliðina Myndskeið: Olía lekur frá flutningabílnum Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Inga Sæland minnkar við sig Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum Krefur Hafnarfjarðarbæ svara vegna hátíðarinnar Nýjast á mbl.is » Nýja Spider-Man myndin gæti fært Holland 100 milljónir dala Ráðast í átak gegn veikindafjarvistum Ástríðufullur og skapandi Hilmar Veigar: Það trúir enginn á Evrópu Prótínríkur Stracciatella-ís í Ninja Creami Umræðan Varnir Íslands eru traustar Hvers virði er fullveldið? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Myndskeið: Búið að losa bílinn frá tengivagninum Flugvöllurinn opnaður aftur Flutningabíll valt á hliðina Mest lesið Í gær Í vikunni Halldóra tekjuhæst sveitastjórnarmanna Eldur á iðnaðarsvæði á Völlunum Óróapúlsar undir Mýrdalsjökli Bíða þess enn að lögregla útskýri allar beyglurnar á bílnum Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Flugvöllurinn opnaður aftur Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Hlekktist á í lendingu: Reykjavíkurflugvöllur lokaður Játaði skýlaust sök: „Mér þykir þetta leitt“ Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Játaði skýlaust sök: „Mér þykir þetta leitt“ Fjarlægja nef Guðmundar Felix á morgun Stal ógrynni af kjúklingabringum Bankinn breytti reglunun Hlekktist á í lendingu: Reykjavíkurflugvöllur lokaður Flutningabíll valt á hliðina Myndskeið: Olía lekur frá flutningabílnum Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Inga Sæland minnkar við sig Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum Krefur Hafnarfjarðarbæ svara vegna hátíðarinnar