Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri Fenris Creation, var í einkar áhugaverðu viðtali í Morgunblaðinu á dögunum. Tilefnið var ræða hans á fundi Áfram Ísland sem fjallaði m.a. um nýsköpun og fyrirtækjarekstur innan Evrópusambandsins. Efni ræðunnar ætti eitt og sér að vera meira en nóg til að sannfæra kjósendur um að hag Íslands sé best borgið utan sambandsins. Hilmar bendir á að árið 2014 hafi ESB verið stærsta hagkerfi heims, en þá var Bretland enn hluti af sambandinu. Núna sé það aftur á móti minna en Bandaríkin og Kína, sé horft til kaupmáttarleiðréttrar landsframleiðslu. Þegar horft sé til verðmætasköpunar í hverri vinnustund sé ESB í 7%, Ísland 12% og Bandaríkin 18%. Langstærsti áfellisdómurinn yfir ESB sé aftur á móti hvernig fyrirtækjum innan þess gangi heilt yfir. Árið 2016 hafi tæp 20% af markaðsvirði hundrað verðmætustu fyrirtækja í heiminum verið innan ESB en nú áratug síðar sé talan komin niður í 8%. *** Þarna var Hilmar bara rétt að byrja. Hann bendir á að ekkert fyrirtæki innan ESB komist á topp tíu lista yfir stærstu fyrirtæki heims og að stærsta fyrirtæki svæðisins sitji í tuttugasta sæti listans. Árið 2007 hafi 46 evrópsk fyrirtæki verið á topp hundrað listanum í heiminum en núna séu þau aðeins 16. Þá hafi á tímabilinu 2008-2021 41 einhyrningur (nýsköpunarfyrirtæki sem metið er á milljarð dala eða meira) flutt höfuðstöðvar sínar frá ESB, mestmegnis til Bandaríkjanna. Loks bendir hann á að evrópsk heimili fjárfesti á ári hverju fyrir 300 milljarða evra utan ESB, mest í Bandaríkjunum. Það geri íslensku lífeyrissjóðirnir einnig, en langstærstur hluti erlendra fjárfestinga þeirra sé í amerískri nýsköpun. „Það trúir í rauninni enginn á Evrópu, í það minnsta ekki nægilega mikið til að fjárfesta fyrir peningana sína þar,“ segir hann í viðtalinu. Allir séu sammála um að blýþungt regluverk ESB sé sökudólgurinn. *** Blómlegt atvinnulíf þar sem nýsköpun og einkaframtakið þrífst er forsenda þeirra lífsgæða sem Íslendingar búa við í dag, enda verða verðmætin til í atvinnulífinu en ekki stjórnarráðinu. Eins og Hilmar bendir á ætti einbeiting allra að beinast að verðmætasköpun og því að stuðla að hagvaxtaraukningu. Aðeins þannig er mögulegt að Ísland haldist áfram í fremstu röð þjóða þegar kemur að velsæld og lífsgæðum. Lausnin á áskorunum í efnahagslífi þjóðarinnar felst því svo sannarlega ekki í inngöngu í hnignunarbandalag á borð við ESB. Týr er einn af föstum skoðanadálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .