Veiði | Morgunblaðið | 20.8.2026 | 7:05 Rjúpnastofninn sagður vera í uppsveiflu Náttúrufræðistofnun leggur til að veiðidögum rjúpu fjölgi um alls 11 daga í ár frá því í fyrra en stofnunin hefur sent umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu tillögu sína þar um. Ljósmynd/Aðsend Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Náttúrufræðistofnun leggur til að veiðidögum rjúpu fjölgi um alls 11 daga í ár frá því í fyrra en stofnunin hefur sent umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu tillögu sína þar um. Sem fyrr er lagt til að veitt verði fimm daga í viku, þ.e. frá föstudegi til þriðjudags, en veiðar verði óheimilar miðvikudaga og fimmtudaga. Fyrsti veiðidagur í rjúpu verður 23. október og á það við um öll veiðisvæði landsins. Sem fyrr er landinu skipt upp í sex veiðisvæði og er veiðitími nokkuð breytilegur eftir landsvæðum. Það fyrirkomulag var tekið upp árið 2024 og er byggt á aðferðafræði nýrra stofnlíkana og svæðisbundinnar veiðistjórnunar. Frétt af mbl.is Leggja til 20 til 45 daga rjúpnaveiði Ólík þróun eftir landshlutum Veiðitíminn er lengstur á Austurlandi, en þar verður veitt til 22. desember skv. tillögunni, á Norðurlandi og Vesturlandi lýkur veiðitímanum 1. desember, þann 24. nóvember á Vestfjörðum en stysta veiðitímabilið verður á Norðvesturlandi og Suðurlandi, þar verður veiði leyfð til 17. nóvember skv. tillögunni. Náttúrufræðistofnun segir að talningar á rjúpu hafi sýnt nokkrar breytingar á fjölda rjúpna frá fyrra ári en þróun stofnstærðar hafi verið ólík eftir landshlutum. Áberandi fjölgun rjúpu hafi orðið á Suðurlandi, Norðurlandi vestra, Norðausturlandi og Austurlandi en á Vestfjörðum og Vesturlandi hafi fjöldi rjúpna verið svipaður og undanfarin ár. Á nokkrum talningarsvæðum, m.a. í Dölunum á Vesturlandi, á Skaga á Norðurlandi vestra og í Bakkafirði, á Tjörnesi og í Kelduhverfi hafi mælst mesti fjöldi rjúpna frá upphafi talninga. Í tilkynningu Náttúrufræðistofnunar kemur fram að stofnbreytingar rjúpu á milli áranna 2025 og 2026 hafi verið mismunandi eftir svæðum og landshlutum. Í heildina hafi um 7% fleiri rjúpur sést í ár en í fyrra. Miðað við stofnvísitölur úr talningum síðustu 20 ára sé rjúpnastofninn við meðaltal á Vesturlandi og Suðurlandi en yfir meðaltali á Norðurlandi vestra, Vestfjörðum, Norðausturlandi og Austurlandi. Frétt af mbl.is Vísbendingar um mikla fjölgun rjúpu Veruleg fækkun fálka Svo sem kunnugt er hefur orðið veruleg fækkun fálka undanfarin ár og er fuglaflensu kennt um. Telur stofnunin líklegt að mikill þéttleiki rjúpna á sumum svæðum tengist fækkun fálka en niðurstöður úr vöktun fálka árið 2026 liggja þó ekki fyrir enn sem komið er. Nefna má að ekkert vorhret varð á landinu í ár, sem væntanlega kemur rjúpnastofninum til góða, en sum vor hefur ungviði rjúpunnar orðið hart úti í kuldaköstum á vorin. Segir stofnunin að skv. stofnlíkönum hafi rjúpnastofninn verið svipaður eða stærri sl. vor en í fyrra og var svo einnig á milli vora árin 2024 og 2025. Þá virðist árleg lifun fugla á árunum 2025 og 2026 hafa aukist, en veiðiálag hefur farið minnkandi allt frá árinu 2025, einkum á Norðausturlandi, Norðvesturlandi, Suðurlandi og Vestfjörðum. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Seinustu hundraðkallar sumarsins Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags. 100 cm Kjarrá Atli Örvarsson 23. júlí 23.7. 101 cm Laxá í Aðaldal Benjamín Kári Matthíasarson 23. júlí 23.7. 100 cm Haffjarðará Edward Joseph Hudson 13. júlí 13.7. 103 cm Laxá í Aðaldal Theódór Friðjónsson 10. júlí 10.7. 103 cm Svalbarðsá Þórður Ingi Júlíusson 5. júlí 5.7. Veiðiárið 2025: 100 cm Hrútafjarðará Jón Tómas Rúnarsson 23. september 23.9. 100 cm Miðá í Dölum Eyrún Ýr Guðmundsdóttir 21. september 21.9. Skoða meira Mest lesið Í gær Í vikunni Fiskur að hellast inn í Blöndu Leggja til 20 til 45 daga rjúpnaveiði Ein stærsta bleikja sem sögur fara af Líkast til sá allra stærsti úr Þjórsá Mikil aukning laxveiði í Jöklu Þrjár ár rufu 2.000 laxa múrinn í dag Bjóða veiðifólki í Hraunsfjörðinn Semja um Eldvatnið til 2036 „Stærsti viðburður í mínu lífi á árinu“ Handlama tónskáld landaði hundraðkalli Leggja til 20 til 45 daga rjúpnaveiði Fiskur að hellast inn í Blöndu Semja um Eldvatnið til 2036 Mikil aukning laxveiði í Jöklu Þrjár ár rufu 2.000 laxa múrinn í dag Bjóða veiðifólki í Hraunsfjörðinn Ein stærsta bleikja sem sögur fara af Líkast til sá allra stærsti úr Þjórsá Kampavín eða áhyggjur hjá leigutökum Sá þúsundasti tók „Eldfésið“ í Miðfirði Þrjár ár rufu 2.000 laxa múrinn í dag Mikil aukning laxveiði í Jöklu Semja um Eldvatnið til 2036 Kampavín eða áhyggjur hjá leigutökum Leggja til 20 til 45 daga rjúpnaveiði Fiskur að hellast inn í Blöndu Sá þúsundasti tók „Eldfésið“ í Miðfirði Bjóða veiðifólki í Hraunsfjörðinn Líkast til sá allra stærsti úr Þjórsá Keppnin framlengd vegna mikils áhuga Fleira áhugavert „Megum ekki fá á okkur fleiri mörk“ Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna „Ef þetta heldur áfram svona þá drep ég hann“ Atburðir í móðu: „Hann átti bara að fara á spítala“ Mest lesið Í gær Í vikunni Fiskur að hellast inn í Blöndu Leggja til 20 til 45 daga rjúpnaveiði Ein stærsta bleikja sem sögur fara af Líkast til sá allra stærsti úr Þjórsá Mikil aukning laxveiði í Jöklu Þrjár ár rufu 2.000 laxa múrinn í dag Bjóða veiðifólki í Hraunsfjörðinn Semja um Eldvatnið til 2036 „Stærsti viðburður í mínu lífi á árinu“ Handlama tónskáld landaði hundraðkalli Leggja til 20 til 45 daga rjúpnaveiði Fiskur að hellast inn í Blöndu Semja um Eldvatnið til 2036 Mikil aukning laxveiði í Jöklu Þrjár ár rufu 2.000 laxa múrinn í dag Bjóða veiðifólki í Hraunsfjörðinn Ein stærsta bleikja sem sögur fara af Líkast til sá allra stærsti úr Þjórsá Kampavín eða áhyggjur hjá leigutökum Sá þúsundasti tók „Eldfésið“ í Miðfirði Þrjár ár rufu 2.000 laxa múrinn í dag Mikil aukning laxveiði í Jöklu Semja um Eldvatnið til 2036 Kampavín eða áhyggjur hjá leigutökum Leggja til 20 til 45 daga rjúpnaveiði Fiskur að hellast inn í Blöndu Sá þúsundasti tók „Eldfésið“ í Miðfirði Bjóða veiðifólki í Hraunsfjörðinn Líkast til sá allra stærsti úr Þjórsá Keppnin framlengd vegna mikils áhuga Fleira áhugavert „Ég hef aðeins áhyggjur af því“ Flugvöllurinn opnaður aftur Unnu álitsgerð um forræði á náttúruauðlindum Myndskeið: Búið að losa bílinn frá tengivagninum