Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Bak­slag fyrir frjálsa fjölmiðlun

Read Full Article →

Sýn hefur hætt útsendingu sjónvarpsfrétta. Þar með lýkur nær 40 ára sögu sjálfstæðrar sjónvarpsfréttastofu sem hefur veitt RÚV harða samkeppni. Þessar fréttir eru bakslag fyrir frjálsa fjölmiðlun á Íslandi. RÚV hóf útsendingar árið 1966 og naut einokunar þar til frjálsar útvarps- og sjónvarpsútsendingar voru loks heimilaðar árið 1986, eftir mikla baráttu þar sem lögreglu var meðal annars beitt á frjálsar útvarpsstöðvar. Stöð 2 hóf útsendingar sama ár og skyndilega höfðu landsmenn val. Tvær öflugar fréttastofur gátu valið ólík mál, spurt ólíkra spurninga og veitt hvor annarri aðhald. Nú er tekið skref til baka. Línuleg dagskrá hefur vissulega minna vægi með tilkomu netmiðla og erlendir tæknirisar taka sífellt stærri hluta auglýsingamarkaðarins. En það afsakar ekki hvernig íslenska ríkið hefur hegðað sér og skekkt samkeppnisstöðu á fjölmiðlamarkaði. RÚV fær meginhluta tekna sinna tryggðan frá ríkinu en sogar samtímis til sín milljarða í auglýsingatekjur og keppir við einkarekna fjölmiðla um starfsfólk og athygli landsmanna. Ruðningsáhrifin eru augljós og óumdeild. Þegar lífið fjarar úr markaðnum er svo lausn stjórnvalda ríkisstyrkir. Fjölmiðlar eru að vissu leyti múlbundnir við ríkisvaldið. Risastór ríkisfjölmiðill öðrum megin og einkareknir miðlar sem í auknum mæli þiggja ríkisstyrki hinum megin. Það er erfitt að sjá hvernig þetta styrkir frjálsa fjölmiðlun eða tryggir aðhald fjölmiðla við ákvarðanir stjórnvalda. Án RÚV í núverandi mynd væri mjög líklega rými fyrir fleiri sjálfstæða fjölmiðla, meiri samkeppni um fréttir og fjölbreyttari sjónarmið. Fjölbreytni felst nefnilega ekki í því að ein stór fréttastofa framleiði mikið af fréttum. Hún verður til þegar margar sjálfstæðar ritstjórnir ákveða hvað þeim þykir fréttnæmt. Þessar fréttir ættu því að vera okkur umhugsunarefni. Íslendingar frelsuðu ljósvakamiðlana árið 1986. Fjörutíu árum síðar stendur ríkisfjölmiðillinn aftur nær einn eftir.

Share this article