Íslenska tæknifyrirtækið KAPP hefur undirritað samning við Arctic Resource Norge AS um heildstæða vinnslulínu fyrir vinnslu Golden Atlantic á kóngakrabba og snjókrabba. KAPP sérhæfir sig í kæliþjónustu, framleiðslu, sölu og þjónustu á búnaði fyrir sjávarútveg, fiskeldi og annan iðnað. Vinnslulínan er hönnuð til að stýra framleiðsluflæðinu frá móttöku hráefnis þar til fullunninni vöru hefur verið pakkað. Lausnin sameinar sjálfvirka meðhöndlun kara og stýringu vöruflæðis, slátrun og meðhöndlun aukaafurða, skoðun, hreinsun og blóðgun, flutning karfa, eldun, kælingu og pækilfrystingu, gljáningu og herðingu, pökkun í kassa og flutning kara og karfa aftur inn í vinnsluferlið. Samkvæmt samningnum mun KAPP útvega vinnslulínuna í heild og sjá um samhæfingu allra helstu þátta hennar. KAPP samræmir vélbúnað, rafbúnað og stýringar til að tryggja samfellt og skilvirkt vöruflæði í gegnum verksmiðjuna. Sjálfvirk meðhöndlun milli mismunandi vinnslustiga dregur úr óþarfa handvirkri meðhöndlun og stuðlar að stöðugu framleiðsluflæði. „Þegar við lögðum mat á verkefnið var mikilvægt að velja samstarfsaðila sem hefði skilning á ferlinu í heild og gæti tekið ábyrgð á því hvernig einstakir hlutar þess vinna saman. Lausn KAPP veitir okkur sveigjanlegt og mjög sjálfvirkt framleiðsluflæði fyrir bæði kóngakrabba og snjókrabba, með þeirri afkastagetu og stýringu vinnsluferla sem við þurfum til að tryggja gæði vörunnar og skapa skilvirkan grunn fyrir áframhaldandi vöxt,“ segir Borgar Tømmervik, forstjóri Golden Atlantic og stjórnarformaður Arctic Resource Norge AS. Verkefnið sameinar sjálfvirkt vöru- og körfuflæði með sérstökum vinnusvæðum fyrir handvirka slátrun og gæðaeftirlit. Ferlið er sett upp þannig að hægt sé að stýra eldun, kælingu, pækilfrystingu, gljáningu og herðingu áður en fullunninni vöru er pakkað fyrir kæligeymslu. Borgar Tømmervik, forstjóri Golden Atlantic og stjórnarformaður Arctic Resource Norge AS. „Við erum stolt af því að Golden Atlantic hafi valið KAPP fyrir þessa mikilvægu fjárfestingu. Verkefnið sýnir vel það sem KAPP hefur upp á að bjóða í Noregi: náið samstarf á staðnum, byggt á víðtækri reynslu af vinnslu sjávarafurða og samþættingu vinnslukerfa. Í samstarfi við Borgar og teymi hans höfum við þróað lausn sem tengir saman allt framleiðsluflæðið og er hönnuð með gæði, áreiðanleika og skilvirkan rekstur að leiðarljósi,“ segir Viggo Brevik, framkvæmdastjóri KAPP í Noregi.