Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Krabbavinnslulína frá KAPP til Noregs

Read Full Article →

Tæknifyrirtækið KAPP hefur hannað og smíðað heildstæða lausn fyrir krabbavinnslu í Noregi sem er sú fyrsta sinnar tegundar þar sem allar hlutar lausnarinnar koma frá einum og sama framleiðanda. Lausnin hefur verið talsverðan tíma á teikniborðinu hjá KAPP en verður afhent kaupanda á komandi mánuðum og gæti hæglega orðið gluggi inn í önnur fyrirtæki sem sérhæfa sig í krabbavinnslu. Umfjöllunin birtist fyrst í Nýsköpun, sérblaði Fiskifrétta, sem kom út 25. febrúar síðastliðinn. Kaupandi lausnarinnar er norskt útgerðarfyrirtæki sem gerir út á snjókrabba og kóngakrabba, sem eru mikilvægar nytjategundir úti fyrir ströndum Noregs. Hann hefur fram til þessa þurft að reiða sig á aðra aðila til að vinna krabbann en hyggst með nýja tæknibúnaðinum fara sjálfur í fullvinnslu á hráefninu. Útgerðarmaðurinn horfir til þess að verða sjálfstæður í vinnslu aflans, hámarka gæði og nýtingu ásamt því að tryggja rekstraröryggið. „Þetta er heildarlausn fyrir krabbavinnslu, alveg frá sjó og inn á smásölumarkaðinn. Menn vilja sjálfvirknivæða svona vinnslu sem mest því það getur reynst heiglum hent að halda starfsfólki í vinnu í vinnslum. Við sáum okkur leik á borði því við áttum fyrir ýmislegt sem gat passað inn í svona vinnslu. Í framhaldinu hönnuðum við heildarlausn fyrir landvinnslu, allt frá móttöku hráefnis yfir í fullvinnslu og pökkun á lokaafurð. Kerfið er fyrir snjókrabba og kóngakrabba sem eru svipaðir en gera þó að einhverju leiti ólíkar kröfur um meðhöndlun og vinnsluhraða,“ segir Ólafur Karl Sigurðsson forstjóri KAPP. Sjálfvirkni Kerfið er með sjálfvirka innmötun á krabba úr körum, sjálfvirka afstöflun kara, sjálfvirka gæðaflokkun og aðgreiningu eftir stærð og gæðum og sjálfvirkt gæðaskoðunarkerfi. Öll innfærsla (e. logistics) er sjálfvirk. Kerfið flettir skelinni af krabbanum og fylgir kerfinu einnig nákvæm kæling og frysting á afurðum. Í lok vinnsluferilsins fer krabbinn í svokallaða glasseringu áður en hann fer í sjálfvirka pakkningu. Pökkunarlínan er öll sjálfvirk en í lok línunnar er karakerfi með sjálfvirku þvottakerfi á körum. Krabbalausnin frá KAPP getur afkastað fjórum tonnum á klukkustund. „Þegar við höfum keyrt þennan búnað með kaupandanum í gegnum allar prófanir þá erum við komnir með vöru sem við munum bjóða þeim sem eru á svipuðum veiðum,“ segir Ólafur. Tilraunir hafa verið gerðar með veiðar á grjótkrabba við Ísland, tegund sem fannst fyrst við Ísland árið 2006 og er nokkuð algeng í Hvalfirði og finnst víða um vestanvert landið. Ólafur segir þessa lausn líklega ekki henta að öllu leiti fyrir vinnslu á grjótkrabba en ekki sé ósennilegt að hlutar lausnarinnar henti aðstæðum á Íslandi með lítilsháttar breytingum.

Share this article