Innlent | mbl | 20.8.2026 | 11:55 Tilfinningin „algjörlega dásamleg“ Guðlaug Erlendsdóttir er ánægð. mbl.is/Eyþór Sólveig Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Eldvirkni á Reykjanesskaga Heilt ár er liðið frá goslokum Kvika ýtir landinu upp við Svartsengi Ár frá gosi og hrinan virðist að lokum komin Ellefu mánuðir frá goslokum Nýr bæjarstjóri vill líta til framtíðar » Fleiri tengdar fréttir Raddir Grindvíkinga Byggir ekki eingöngu á vísindalegu mati Grunnskólastarf að hefjast í Grindavík Skólahald snýr aftur til Grindavíkur Nýr bæjarstjóri vill líta til framtíðar Þjóðháttadeild safnar sögum úr Grindavík » Fleiri tengdar fréttir „Við bíðum bara eftir skólasetningu, að fá líf og fjör í húsið,“ segir Guðlaug Erlendsdóttir, skólastjóri Grunnskóla Grindavíkur, en skólahald hefst þar aftur í næstu viku. Tilfinningin að opna skólann aftur eftir svona langan tíma sé „algjörlega dásamleg“. Þrjú ár eru frá því skólahald var lagt niður í kjölfar rýmingar bæjarins. Starfsemi hófst í leikskólanum fyrr í þessum mánuði og segir Guðlaug það hafa verið frábært að fylgjast með húsinu fyllast af lífi. „Að heyra í krökkunum þar, æ, það er bara dásamlegt. Þetta er svo dýrmætt og mikilvægt skref í endurreisn samfélagsins, að skólahald fari af stað, þannig það er mikil tilhlökkun að fá krakkana aftur í grunnskólann.“ Frétt af mbl.is Skólahald snýr aftur til Grindavíkur 24 börn eru skráð í grunnskólann í vetur, en endanlegur fjöldi nemenda liggur líklega ekki fyrir fyrr en á skólasetningu á þriðjudaginn. „Ég verð með foreldrafundi í dag og það skýrist kannski betur eftir það, einhverjir foreldrar gætu verið á báðum áttum,“ útskýrir Guðlaug. Hún á von á því að fjölskyldur flestra þessara barna stefni á að flytja í bæinn þegar hægt verður að hafa þar fasta búsetu. Þá bætist kannski í nemendafjöldann yfir skólaárið. Skólahald hefst í grunnskólanum eftir þriggja ára hlé. mbl.is/Eggert Jóhannesson Í góðu samstarfi við viðbragðsaðila Ljóst er að skólinn verður fámennur en Guðlaug segir þau ætla að nýta sér þá möguleika sem fámennið færi þeim í skólastarfinu. Kennt verður á stigum og árgangar verða saman í skólastofum en fá námsefni við hæfi sem hentar hverjum árgangi fyrir sig. Sex kennarar munu kenna við skólann í vetur. Grunnskóli Grindavíkur var nokkuð fjölmennur áður en eldsumbrotin á Reykjanesi hófust og það kom til rýmingar bæjarins. 550 nemendur voru þá skráðir í skólann og þar störfuðu um 100 kennarar. Guðlaug segir þau í góðu samstarfi við viðbragðsaðila vegna möguleika á áframhaldandi eldsumbrotum og þá rýmingum á svæðinu. „Öryggi bæði nemenda og starfsmanna er algjörlega í forgrunni hjá okkur. Það eru klárar rýmingaráætlanir bæði fyrir grunnskólann og leikskólann.“ Áætlanir verða einnig kynntar fyrir foreldrum og æfingar munu reglulega fara fram. Fyrsta æfingin verður strax í næstu viku. Tengdar fréttir Eldvirkni á Reykjanesskaga Heilt ár er liðið frá goslokum Kvika ýtir landinu upp við Svartsengi Ár frá gosi og hrinan virðist að lokum komin Ellefu mánuðir frá goslokum Nýr bæjarstjóri vill líta til framtíðar » Fleiri tengdar fréttir Raddir Grindvíkinga Byggir ekki eingöngu á vísindalegu mati Grunnskólastarf að hefjast í Grindavík Skólahald snýr aftur til Grindavíkur Nýr bæjarstjóri vill líta til framtíðar Þjóðháttadeild safnar sögum úr Grindavík » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Tilfinningin „algjörlega dásamleg“ Watson-samtökin krefja ráðherra um úttekt Allir tiltækir vagnar munu flytja þúsundir Rekinn frá Stjörnunni eftir tæpar tíu vikur í starfi Aðild að ESB – mikil tækifæri glatast í viðskiptum við Kína Umræðan Varnir Íslands eru traustar Blindi bletturinn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Tilfinningin „algjörlega dásamleg“ ÍE afhjúpar áður óþekkta áhættu á parkinson Nýtt torg verður á Stjórnarráðsreit Mest lesið Í gær Í vikunni Danska konan fær 225 milljónir Ráðast í átak gegn veikindafjarvistum Hilmar Veigar: Það trúir enginn á Evrópu Halldóra tekjuhæst sveitastjórnarmanna Nýtt torg verður á Stjórnarráðsreit Verða áfram í sölu Eldur á iðnaðarsvæði í Hellnahverfi Hafnarstræti undir glerhimin Óróapúlsar undir Mýrdalsjökli Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Játaði skýlaust sök: „Mér þykir þetta leitt“ Fjarlægja nef Guðmundar Felix á morgun Stal ógrynni af kjúklingabringum Bankinn breytti reglunun Hlekktist á í lendingu: Reykjavíkurflugvöllur lokaður Flutningabíll valt á hliðina Myndskeið: Olía lekur frá flutningabílnum Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Inga Sæland minnkar við sig Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum Nýjast á mbl.is » Tilfinningin „algjörlega dásamleg“ Watson-samtökin krefja ráðherra um úttekt Allir tiltækir vagnar munu flytja þúsundir Rekinn frá Stjörnunni eftir tæpar tíu vikur í starfi Aðild að ESB – mikil tækifæri glatast í viðskiptum við Kína Umræðan Varnir Íslands eru traustar Blindi bletturinn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Myndskeið: Búið að losa bílinn frá tengivagninum Rafleiðnin ekki verið hærri síðan 2017 Vatnshæð í ánni gæti hækkað á næstu dögum Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Mest lesið Í gær Í vikunni Danska konan fær 225 milljónir Ráðast í átak gegn veikindafjarvistum Hilmar Veigar: Það trúir enginn á Evrópu Halldóra tekjuhæst sveitastjórnarmanna Nýtt torg verður á Stjórnarráðsreit Verða áfram í sölu Eldur á iðnaðarsvæði í Hellnahverfi Hafnarstræti undir glerhimin Óróapúlsar undir Mýrdalsjökli Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Játaði skýlaust sök: „Mér þykir þetta leitt“ Fjarlægja nef Guðmundar Felix á morgun Stal ógrynni af kjúklingabringum Bankinn breytti reglunun Hlekktist á í lendingu: Reykjavíkurflugvöllur lokaður Flutningabíll valt á hliðina Myndskeið: Olía lekur frá flutningabílnum Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Inga Sæland minnkar við sig Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum