Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Ari kjörinn formaður OR

Read Full Article →

Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, var í dag kjörinn stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur (OR) á framhaldsaðalfundi félagsins. Ari, sem er fyrrverandi forstjóri 365 miðla og Mjólkursamsölunnar, tilkynnti í júní um að hann hefði þegið boð Hildar Björnsdóttur, nýs borgarstjóra, um stjórnarformennsku hjá OR. „Þar vegur þyngst að við í Miðflokknum buðum okkur fram til að þjóna Reykvíkingum og formennska í OR veitir tækifæri til að setja mark sitt á stefnumörkun sem skiptir miklu fyrir alla íbúa borgarinnar og miklu fleiri,“ skrifaði Ari í færslu á Facebook. Ari sagði að áherslur Miðflokksins varðandi OR séu m.a. að OR eigi að einblína á sína kjarnastarfsemi en stefna að því að draga sig út úr verkefnum á borð við Carbfix og Ljósleiðarann. Ennfremur telji flokkurinn að arðgreiðslur Orkuveitunnar hafi verið of háar og rekstur borgarinnar hafi verið of háður þeim. Því þurfi að breyta. Einar og Skúli í stjórn Auk Ara taka Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar í Reykjavík, og Skúli Helgason, borgarfulltrúi Samfylkingrinnar sæti í stjórn Orkuveitunnar. Auk þeirra hafa Ásta Dís Óladóttir, forseti Viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands, Ragnar Baldvin Sæmundsson, bæjarfulltrúi á Akranesi og Ragnheiður Björk Halldórsdóttir, iðnaðarverkfræðingur og sjálfbærniráðgjafi, verið skipuð í stjórn OR. Sigurður Guðmundsson mun sitja fundi stjórnar sem áheyrnarfulltrúi Borgarbyggðar. Varamenn eru: Magnea Gná Jóhannsdóttir, Brynjar Níelsson, Heiða Björg Hilmisdóttir, Auður Hermannsdóttir, María Sigríður Guðjónsdóttir og Liv Aase Skarstad. Áheyrnarfulltrúi til vara er Ragnhildur Eva Jónsdóttir. Orkuveitan er í 93,5% eigu Reykjavíkurborgar, 5,5% eigu Akranesbæjar og 0,9% eigu Borgarbyggðar.

Share this article