Thelma Aðalsteinsdóttir fékk þátttökurétt á heimsmeistaramótinu í áhaldafimleikum. Thelma keppti puttabrotin á Evrópumeistaramótinu nýverið en kemst þrátt fyrir það á HM. Árangur Thelmu á heimsbikarmóti er ástæðan fyrir þátttökurétti hennar á HM. Þar keppti Thelma til úrslita í golfi á mótinu í Egyptalandi og var nálægt verðlaunasæti. Ísland hefur aldrei áður fengið keppanda á HM út frá árangri á heimsbikarmóti. Hún fer sem sérfræðingur á golfi og nú verða því fjórir Íslendingar á HM. Lilja Katrín Gunnarsdóttir hafði áður tryggt sinn á mótið en hún var efst íslensku kvennasveitarinnar í fjölþraut og varð í 58. sæti af 92. Lilja keppir í fjölþraut á HM. Fyrr í dag tilkynnti Fimleikasambandið að þeir Ágúst Ingi Davíðsson og Dagur Kári Ólafsson hefðu tryggt sér þátttökurétt á HM. Sambandið bíður eftir formlegri staðfestingu frá Alþjóðafimleikasambandinu en hefur þó gefið út að þeir verði á HM.