Thelma Björg Björnsdóttir og Sonja Sigurðardóttir kepptu til úrslita á Evrópumóti fatlaðra í sundi í dag. Thelma Björg synti í 100 metra bringusundi þar sem litlu mátti muna að hún næði í bronsverðalun. Hún kom í bakkann á 2:00,32 og endaði fjórða. Nisanur Kocabas frá Þýskalandi varð í þriðja sæti á 1:59,94. Þá synti Thelma Björg einnig í úrslitum 50 metra skriðsunds og lauk keppni í áttunda sæti. Sonja synti í úrslitum 50 metra skriðsunds og kláraði á 1:13,75. Tíminn skilaði henni sjötta sætinu.