Hollenski bílaframleiðandinn Spyker er að undirbúa að setja á markað nýjan 800 hestafla sportbíl sem ber heitið C8 Preliator XXV Coupé. Bílaframleiðandinn Spyker framleiddi nokkra ofursportbíla á fyrsta áratug aldarinnar og komst enn frekar í fréttirnar þegar fyrirtækið keypti sænska bílamerkið Saab af General Motors árið 2010. Allt fór þó á versta veg því Saab varð gjaldþrota 2011 og Spyker í kjölfarið árið 2014. Victor Muller, sem stofnaði fyrirtækið 1999, tók aftur við stjórnartaumunum á síðasta ári og er nú með úkraínska viðskiptajöfurinn Volodymyr Nosov sér við hlið sem meðeiganda að Spyker. Sjá einnig Fyrrverandi forstjóri Saab handtekinn Nú virðast vera bjartari tímar fram undan. Fyrirtækið hefur alla vega kynnt þennan nýja bíl sem er sjóðheitur sportbíll með 4 lítra V8 vél sem skilar eins og áður segir alls 800 hestöflum og 738 Nm togi. Sportbíllinn verður smíðaður að talsverðu leyti úr áli og með því verður fullt af leðri og öðrum lúxus í innanrýminu. Bíllinn verður framleiddur í takmörkuðu upplagi eða einungis 25 eintökum. Ekkert hefur verið gefið upp um verð á bílnum enn sem komið er eða nákvæmlega hvenær bíllinn fer á markað en það verður spennandi að fylgjast með því hvenær það verður.