Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Hvað hefur komið fram í Reykholtsmálinu?

Read Full Article →

Innlent | mbl | 20.8.2026 | 21:00 Hvað hefur komið fram í Reykholtsmálinu? Reykholtsmálið á rætur að rekja til apríl 2024 þegar hópur fólks réðst að erlendum manni, palestínskum að uppruna og með maltneskt ríkisfang, á heimili hans í Reykholti í Biskupstungum. Samsett mynd mbl.is/Karítas/Eggert Setja bókamerki Tengdar fréttir Ofbeldisbrot í Reykholti í Biskupstungum Ágreiningur um leiguskuld í Reykholtsmálinu „Þá var kjálkinn hans ekki á réttum stað“ Ákærði á staðnum þegar eiginkonan gaf skýrslu Lýsti líkamsárásinni: „Þau hótuðu dóttur minni“ Brotaþoli í Reykholtsmáli gefur skýrslu fyrir dómi » Fleiri tengdar fréttir Aðalmeðferð stendur en yfir í einu umfangsmesta ofbeldis- og fjárkúgunarmáli síðustu ára, hinu svokallaða Reykholtsmáli. Fjórði dagur aðalmeðferðar hófst í dag og því vert að taka saman hvað hefur komið fram enn sem komið er. Reykholtsmálið á rætur að rekja til apríl 2024 þegar hópur fólks réðst að erlendum manni, palestínskum að uppruna og með maltneskt ríkisfang, á heimili hans í Reykholti í Biskupstungum. Samkvæmt ákæru voru fimm karlar og ein kona að verki. Þau eru ákærð fyrir meðal annars sérstaklega hættulega og stórfellda líkamsárás, frelsissviptingu, ólögmæta nauðung og rán. Frétt af mbl.is Brotaþoli í Reykholtsmáli gefur skýrslu fyrir dómi Sex sakborningar Sakborningarnir eru eftirfarandi: Sigurður Gunnar Ásgeirsson , leigusali brotaþola. Ingunn Rut Sigurðardóttir , dóttir Sigurðar og unnusta Andra Más Mortensen Birgissonar. Andri Már Mortensen Birgisson , unnusti Ingunnar og bróðir Péturs Már Mortensen Birgissonar. Pétur Már Mortensen Birgisson , bróðir Andra. Níels Pálmars Benediktsson, tengist Andra en ekki fjölskylduböndum hópsins. Halldór Logi Sigurðsson , tengist Andra en ekki fjölskylduböndum hópsins. Frétt af mbl.is Sex Íslendingar ákærðir fyrir ofbeldi og frelsissviptingu Missti 15 tennur Að því er hefur komið fram við aðalmeðferðina varðaði málið leiguskuld mannsins gagnvart Sigurði. Samkvæmt ákæru var maðurinn bundinn og beittur ítrekuðu og alvarlegu ofbeldi á heimili sínu. Honum var meðal annars hótað með hnífi og haglabyssu auk þess sem aðgangs var krafist að rafrænum skilríkjum hans og bankareikningum. Þá mun honum hafa verið hótað að honum yrði komið fyrir á báti til Grænlands og hent fyrir borð. Rafræn skilríki voru sett upp í síma hans með blekkingum og í kjölfarið voru tæplega 18 milljónir króna millifærðar af bankareikningi hans. Maðurinn var síðan neyddur úr landi. Hann fannst síðar illa farinn á Möltu. Samkvæmt ákærunni hlaut hann meðal annars kjálka- og rifbeinsbrot, höfuðáverka og missti 15 tennur. Frétt af mbl.is Lýsti líkamsárásinni: „Þau hótuðu dóttur minni“ Mismunandi frásagnir sakborninga Frásagnir sakborninga eru á ýmsa vegu. Andri Már Mortensen Birgisson neitaði að gefa skýrslu fyrir dómi. Fyrsta degi aðalmeðferðar var varið í að hlusta á upptökur af símtölum úr síma Andra, sem lýst hefur verið sem fordæmalausu atviki í réttarsal. Verjandi eins sakborninga hefur upplýst mbl.is um að Andri hafi sjálfur komið upp forriti á síma sínum til þess að taka upp símtöl, og að þannig hafi lögregla komist yfir hljóðupptökurnar. Á þeim heyrist meðal annars Andri segja að hann sé „í miðri frelsissviptingu“ og ræða við aðra um atburðina, auk þess sem rætt er um ofbeldi og aðgerðir gegn manninum. Frétt af mbl.is „Blessaður, er í miðri frelsissviptingu“ Ber fyrir sig minnisleysi Sigurður Gunnar Ásgeirsson neitar sök. Hann kveðst hvorki hafa beitt manninn ofbeldi né hótað honum með keðjusög eða að honum yrði hent fyrir borð við Grænland. Hann hefur borið fyrir sig minnisleysi um ýmis atriði. Sigurður var leigusali mannsins og taldi sig eiga inni leigu hjá honum. Í símaupptökum sem spilaðar hafa verið fyrir dómi ræða hann og Andri meðal annars um manninn og hvenær hann kæmi heim. Frétt af mbl.is Neitar því að hafa hótað manninum með keðjusög Breytti afstöðu sinni Ingunn Rut Sigurðardóttir hefur breytt afstöðu sinni og játað að hafa tekið þátt í frelsissviptingu og ólögmætri nauðung. Hún neitar aftur á móti að hafa beitt manninn líkamlegu ofbeldi. Hún segir að hún hafi vitað að hann væri beittur ofbeldi til að ná af honum fé. Ingunn hefur einnig greint frá því að hún hafi verið í fíkniefnaneyslu á þessum tíma og síðar leitað sér meðferðar. Frétt af mbl.is Játaði skýlaust sök: „Mér þykir þetta leitt“ Lánað Andra bíl Níels Pálmar Benediktsson neitar sök. Hann segir að upphaflegt erindi hans hafi verið að lána Andra bíl og að hann hafi komið með til að tryggja að bílnum yrði skilað. Hann neitar einnig að hafa sent skilaboð þar sem lagt var á ráðin um hótanir. Frétt af mbl.is „Númer tvö, við sjálfsmorðum hann“ Stangast á við vitnisburð annarra Halldór Logi Sigurðsson neitar sök. Segir Halldór að hann hafi aldrei farið inn á heimili mannsins í Reykholti. Framburður Halldórs stangast á við vitnisburð annarra og hljóðupptökur úr síma Andra. Frétt af mbl.is Segist ekki hafa farið með: „Leist ekki á blikuna“ Segist hafa beðist afsökunar Pétur Már Mortensen Birgisson, yngstur sakborninganna, hefur lýst því að hann hafi ekki þorað að skipta sér af vegna ótta við eldri bróður sinn, Andra. Atburðirnir séu í móðu og að hann hafi komið upp í Reykholt að beiðni bróður síns. Hann hefur jafnframt sagst hafa beðið manninn afsökunar meðan atburðirnir stóðu yfir. Skýrslutöku hans lauk skyndilega eftir að spiluð voru símtöl þar sem heyrist í Andra og reyndust þau Pétri ofviða. Hann var nýorðinn 18 ára þegar meint brot áttu sér stað. Frétt af mbl.is Atburðir í móðu: „Hann átti bara að fara á spítala“ Fjórði dagur aðalmeðferðarinnar fór fram í dag. Frétt af mbl.is Ákærði á staðnum þegar eiginkonan gaf skýrslu Tengdar fréttir Ofbeldisbrot í Reykholti í Biskupstungum Ágreiningur um leiguskuld í Reykholtsmálinu „Þá var kjálkinn hans ekki á réttum stað“ Ákærði á staðnum þegar eiginkonan gaf skýrslu Lýsti líkamsárásinni: „Þau hótuðu dóttur minni“ Brotaþoli í Reykholtsmáli gefur skýrslu fyrir dómi » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Vilhjálmur vissi ekkert um fyrirhugaða heimkomu Harrys Stjartan vann Íslandsmeistaranna Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Fyrsta íslenska mótið með VRS Umræðan Varnir Íslands eru traustar Hvers virði er fullveldið? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segja umsamin ákvæði óáreiðanleg Borgarfulltrúar taka á sig 95% hækkun á mat Hafnarstræti undir glerhimin Flugvöllurinn opnaður aftur Mest lesið Í gær Í vikunni Danska konan fær 225 milljónir Ráðast í átak gegn veikindafjarvistum Hilmar Veigar: Það trúir enginn á Evrópu Guðmundur Felix birti fyrstu myndina eftir aðgerð Halldóra tekjuhæst sveitarstjórnarmanna Borgarfulltrúar taka á sig 95% hækkun á mat Nýtt torg verður á Stjórnarráðsreit Allir tiltækir vagnar munu flytja þúsundir Verða áfram í sölu Hafnarstræti undir glerhimin Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Játaði skýlaust sök: „Mér þykir þetta leitt“ Fjarlægja nef Guðmundar Felix á morgun Stal ógrynni af kjúklingabringum Bankinn breytti reglunun Hlekktist á í lendingu: Reykjavíkurflugvöllur lokaður Flutningabíll valt á hliðina Myndskeið: Olía lekur frá flutningabílnum Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Inga Sæland minnkar við sig Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum Nýjast á mbl.is » Vilhjálmur vissi ekkert um fyrirhugaða heimkomu Harrys Stjartan vann Íslandsmeistaranna Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Fyrsta íslenska mótið með VRS Umræðan Varnir Íslands eru traustar Hvers virði er fullveldið? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hafnarstræti undir glerhimin Ákærði á staðnum þegar eiginkonan gaf skýrslu Framkvæmdir að hefjast við Miklubraut og Grensásveg „Ég hef aðeins áhyggjur af því“ Mest lesið Í gær Í vikunni Danska konan fær 225 milljónir Ráðast í átak gegn veikindafjarvistum Hilmar Veigar: Það trúir enginn á Evrópu Guðmundur Felix birti fyrstu myndina eftir aðgerð Halldóra tekjuhæst sveitarstjórnarmanna Borgarfulltrúar taka á sig 95% hækkun á mat Nýtt torg verður á Stjórnarráðsreit Allir tiltækir vagnar munu flytja þúsundir Verða áfram í sölu Hafnarstræti undir glerhimin Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Játaði skýlaust sök: „Mér þykir þetta leitt“ Fjarlægja nef Guðmundar Felix á morgun Stal ógrynni af kjúklingabringum Bankinn breytti reglunun Hlekktist á í lendingu: Reykjavíkurflugvöllur lokaður Flutningabíll valt á hliðina Myndskeið: Olía lekur frá flutningabílnum Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Inga Sæland minnkar við sig Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum

Share this article