Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Á sama tíma er verið að pynta mann til ólífis“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 21.8.2026 | 14:53 „Á sama tíma er verið að pynta mann til ólífis“ Reykholtsmálið á rætur að rekja til apríl 2024 þegar hópur fólks réðst að erlendum manni, palestínskum að uppruna og með maltneskt ríkisfang, á heimili hans í Reykholti í Biskupstungum. Ljósmynd/Colourbox Setja bókamerki Tengdar fréttir Ofbeldisbrot í Reykholti í Biskupstungum Vissi að brotaþoli ætti milljónir Starfsmenn Símans sögðust hafa verið blekktir Skýrslutökur halda áfram í Reykholtsmálinu Ágreiningur um leiguskuld í Reykholtsmálinu „Þá var kjálkinn hans ekki á réttum stað“ » Fleiri tengdar fréttir Fimmta degi aðalmeðferðar í Reykholtsmálinu lauk í Héraðsdómi Suðurlands í dag. Fjöldi vitna gaf skýrslu og meðal annars komu starfsmenn Símans og Landsbankans fyrir dóm, auk vinnuveitanda brotaþola, vinkvenna hans og aðstandenda eins sakbornings. Aðalmeðferðin hófst á því að Ingunn Rut Sigurðardóttir staðfesti játningu sína á aðild að stórfelldri og sérlega hættulegri líkamsárás, frelsissviptingu og ólögmætri nauðung. Ingunn hafnar því þó að brotaþoli hafi verið bundinn á höndum og fótum meðan hún var viðstödd og segist ekki hafa beitt hann ofbeldi. Hún segist heldur ekki hafa beitt ofbeldi til að þvinga hann til að láta fé af hendi, en viðurkennir að fjármunirnir hafi verið teknir af honum með ólögmætum hætti. Frétt af mbl.is Játaði skýlaust sök: „Mér þykir þetta leitt“ Laug að brotaþoli væri stjúpfaðir sinn Starfsmenn Símans lýstu því næst hvernig Andri Már Mortensen Birgisson hafi komið með brotaþola í verslun fyrirtækisins og fengið starfsmenn til að setja upp rafræn skilríki í síma hans. Starfsfólkinu hafi meðal annars verið sagt að brotaþoli væri stjúpfaðir Andra og hefði verið veikur. Vinnuveitandi brotaþola gaf einnig skýrslu og lýsti því hvernig grunsemdir hans vöknuðu þegar maðurinn mætti ekki til vinnu eftir helgina. Honum þótti sérstaklega óvenjulegt að fá SMS frá brotaþola þar sem þeir hefðu alla jafna átt samskipti í gegnum WhatsApp eða Messenger. Þá kom fram að Andri hefði komið einn að heimili brotaþola skömmu fyrir árásina og reynt að fá hann með sér í hraðbanka. Brotaþoli hefði rætt það við vinnuveitanda sinn og þeir verið búnir að ræða að tilkynna komu Andra til lögreglu. Frétt af mbl.is Starfsmenn Símans sögðust hafa verið blekktir Frétt af mbl.is Vissi að brotaþoli ætti milljónir „Það kom í mig einhver óhugur“ Tvær vinkonur brotaþola gáfu einnig skýrslu. Þær fóru báðar að heimili hans á þriðjudeginum eftir helgina til að leita að honum og lýstu því hvernig þær hefðu hitt sakborninginn Sigurð Gunnar Ásgeirsson sem þær sögðu hafa verið skrýtinn í fasi og ólíkan sjálfum sér. „Það kom í mig einhver óhugur,“ sagði önnur þeirra fyrir dómi og lýsti því hvernig hún hafi ætlað að hringja á lögreglu en Sigurður náð að tala hana af því. Frétt af mbl.is Hvað hefur komið fram í Reykholtsmálinu? Frá Reykholti. mbl.is/Sigurður Bogi „All good“ fjárhagslega Núverandi maki sakborningsins Péturs Más Mortensen Birgissonar og fyrrverandi kærasta hans gáfu einnig skýrslu. Pétur hefur áður sagst hafa komið að heimili brotaþola eftir árásina og ekki þorað að skipta sér af aðstæðum af ótta við bróður sinn, Andra. Maki Péturs sagði hann hafa farið að heiman eftir að hafa fengið símtal sem virtist hafa valdið honum áhyggjum. Hann hefði ekki sagt hvert hann væri að fara. Eftir helgina hefði Pétur lagt 100 þúsund krónur inn á reikning makans. Hann sagði að um endurgreiðslu á láni væri að ræða en gaf ekki upp hvaðan peningarnir komu. Fyrrverandi kærasta Péturs sagði hann hafa verið með nýjan síma og Gucci-sólgleraugu þegar hann ók henni til Akureyrar nokkrum dögum eftir atburðina. Hann hefði einnig boðist til að gefa henni nýjan síma. Þá hefði hann rætt um utanlandsferð sumarið eftir og sagt sig fjárhagslega „all good“. Frétt af mbl.is Ágreiningur um leiguskuld í Reykholtsmálinu Reyndi að fá nýtt lykilorð fyrir brotaþola Starfsmaður Landsbankans lýsti því svo hvernig Sigurður Gunnar hefði komið í útibú bankans mánudaginn 22. apríl og ítrekað reynt að fá nýtt lykilorð fyrir brotaþola til að komast inn í heimabanka hans. Þegar Sigurði var sagt að brotaþoli þyrfti sjálfur að vera viðstaddur sagði hann manninn vera lasinn heima en þrátt fyrir það varð starfsmaðurinn ekki við beiðni hans. Frétt af mbl.is „Þá var kjálkinn hans ekki á réttum stað“ Sannleikurinn lyginni líkastur Kunningjakona Sigurðar og eiginkonu hans gaf einnig skýrslu en sá kunningjaskapur felst í því að dætur þeirra voru vinkonur. Hún sagði hjónin hafa rætt við sig um meintar leiguskuldir brotaþola helgina sem árásin átti sér stað og hvatti þau til að leita til lögreglu þar sem þau virtust óróleg. „Á sama tíma er verið að pynta mann til ólífis,“ sagði konan fyrir dómi. Hún sagðist hafa spurt Sigurð um leiguskuldina og fengið þau svör að hún væri á bilinu 500–600 þúsund krónur. Sigurður hefði jafnframt sagt henni að brotaþoli ætti 20 milljónir króna. Þegar eiginkona Sigurðar kom að sækja dætur þeirra úr pössun á mánudeginum sagði hún vinkonunni að málið væri leyst og brotaþoli væri farinn. Sannleikur sem er lyginni líkastur, allt þetta mál, sagði konan fyrir dómi í dag. Aðalmeðferð heldur áfram á mánudag. Þá er meðal annars gert ráð fyrir að íslenskir og maltneskir læknar gefi skýrslu auk lögreglumanna. Tengdar fréttir Ofbeldisbrot í Reykholti í Biskupstungum Vissi að brotaþoli ætti milljónir Starfsmenn Símans sögðust hafa verið blekktir Skýrslutökur halda áfram í Reykholtsmálinu Ágreiningur um leiguskuld í Reykholtsmálinu „Þá var kjálkinn hans ekki á réttum stað“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Á sama tíma er verið að pynta mann til ólífis“ Bensínskatturinn til skoðunar Ræða um nýja Þjóðadeild Kristín skipuð sýslumaður: Landið eitt umdæmi Mjúki tónninn fór vel í markaðinn Umræðan Þurfum við enn eitt yfirvaldið? Að múra sig inni þegar heimurinn stendur opinn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Borgarfulltrúar taka á sig 95% hækkun á mat Kristín skipuð sýslumaður: Landið eitt umdæmi Vissi að brotaþoli ætti milljónir Meta möguleika á leit að Lúðvík Mest lesið Í gær Í vikunni Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Alda tekin að rísa úr Fossvoginum Umferðaröngþveiti í uppsiglingu Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Gröf opnuð, duftker brotið upp og ösku stolið Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Refir gerast ágengir fyrir norðan Starfsmenn Símans sögðust hafa verið blekktir Meta möguleika á leit að Lúðvík Forræði sjávarauðlinda færi til ESB Danska konan fær 225 milljónir Ráðast í átak gegn veikindafjarvistum Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Guðmundur Felix birti fyrstu myndina eftir aðgerð Hilmar Veigar: Það trúir enginn á Evrópu Halldóra tekjuhæst sveitarstjórnarmanna Borgarfulltrúar taka á sig 95% hækkun á mat Nýtt torg verður á Stjórnarráðsreit Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Allir tiltækir vagnar munu flytja þúsundir Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum Krefur Hafnarfjarðarbæ svara vegna hátíðarinnar Nýjast á mbl.is » „Á sama tíma er verið að pynta mann til ólífis“ Bensínskatturinn til skoðunar Ræða um nýja Þjóðadeild Kristín skipuð sýslumaður: Landið eitt umdæmi Mjúki tónninn fór vel í markaðinn Umræðan Þurfum við enn eitt yfirvaldið? Að múra sig inni þegar heimurinn stendur opinn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tilfinningin „algjörlega dásamleg“ Forræði sjávarauðlinda færi til ESB Meta möguleika á leit að Lúðvík Starfsmenn Símans sögðust hafa verið blekktir Mest lesið Í gær Í vikunni Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Alda tekin að rísa úr Fossvoginum Umferðaröngþveiti í uppsiglingu Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Gröf opnuð, duftker brotið upp og ösku stolið Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Refir gerast ágengir fyrir norðan Starfsmenn Símans sögðust hafa verið blekktir Meta möguleika á leit að Lúðvík Forræði sjávarauðlinda færi til ESB Danska konan fær 225 milljónir Ráðast í átak gegn veikindafjarvistum Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Guðmundur Felix birti fyrstu myndina eftir aðgerð Hilmar Veigar: Það trúir enginn á Evrópu Halldóra tekjuhæst sveitarstjórnarmanna Borgarfulltrúar taka á sig 95% hækkun á mat Nýtt torg verður á Stjórnarráðsreit Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Allir tiltækir vagnar munu flytja þúsundir Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum Krefur Hafnarfjarðarbæ svara vegna hátíðarinnar

Share this article