Security News

Cybersecurity news aggregator

HIGH Attacks RÚV

Kona ákærð fyrir að skipuleggja sprengjutilræði gegn stjórnarbyggingum í New York

This article details a thwarted physical attack plan by a domestic extremist, Jessica Bowie, who intended to infiltrate New York state government buildings in Albany using a food delivery truck as cover to plant explosives. Her methodology involved extensive pre-operational surveillance to understand security measures and the acquisition of bomb-making materials and anarchist literature. The case highlights the persistent threat of insider-assisted, physically destructive attacks against government infrastructure by individuals radicalized online.
Read Full Article →

Jessica Bowie er 35 ára bandarísk kona sem hefur verið ákærð fyrir brot á hryðjuverkalögum eftir að hún tjáði uppljóstrara alríkislögreglunnar að hún ætlaði sér að gera sprengjutilræði gegn aðsetri löggjafarþings og ríkisstjórnar New York-ríkis. Það er í borginni Albany, skammt frá landamærunum að Kanada. Samkvæmt dómsskjölum er Bowie ákærð fyrir tilraun til að veita tilteknum, erlendum hryðjuverkasamtökum stuðning. Hún hafi sagst í dulkóðuðum samskiptum við uppljóstrarann vilja drepa fjölda þingmanna, eyðileggja skjöl og granda eins miklu af byggingunum og unnt væri. Hugmynd hennar var að þykjast vera bílstjóri matarsendingarbíls og laumast þannig inn á svæðið og koma fyrir sprengju. Ætlaði að flýja til Sýrlands Að því búnu ætlaði hún að flýja til Sýrlands og snúa aftur síðar til að gera annað hryðjuverk. Jessica Bowie hafði snúist til íslamstrúar og gerst í færslum á netinu hávær stuðningsmaður hryðjuverkasamtakanna sem kenna sig við íslamskt ríki. Auk þess birti hún yfirlýsingar um andúð á Bandaríkjunum og um stuðning við hryðjuverkaárásirnar í september 2001. Hún hafi einnig tjáð uppljóstraranum þann stuðning sinn, safnað að sér lesefni um stjórnleysisstefnu sem hún taldi gagnast við ráðabruggið og sóst eftir leiðbeiningum um gerð sprengiefnis. Hún hafi einnig ætlað að fylgjast gaumgæfilega með stjórnarbyggingunum til að kynna sér öryggisráðstafanir þar. Byggingarnar þykja mikið listaverk, eru friðaðar og hýsa báðar deildir þingsins. Jessica Bowie var handtekin mótþróalaust 19. ágúst eftir að hún hafði safnað að sér búnaði til sprengjugerðar.

Share this article