Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

New York bannar ný gagnaversverkefni í eitt ár

Read Full Article →

New York ríki hefur ákveðið að leggja á tímabundið bann til eins árs á ný gagnaversverkefni í ljósi vaxandi andstöðu við umfangsmikla uppbyggingu í Bandaríkjunum. New York verður þar með fyrsta ríki Bandaríkjanna til að leggja slíkt bann á uppbyggingu nýrra gagnavera. Kathy Hochul, ríkisstjóri New York-ríkis, undirritaði í dag tilskipun sem felur í sér tímabundið bann við byggingu nýrra gagnavera með yfir 50 megavött af uppsettu afli. Hún sagði að gagnaverin skaði umhverfið og gætu leitt til hærri raforkureikninga. Stór tæknifyrirtæki hafa ráðist í afar umfangsmikla uppbygging gagnavera á undanförnum árum vegna gífurlegrar eftirspurnar gervigreindarfyrirtækja eftir reikniafli. „Við viljum að gervigreindarfyrirtæki fjárfesti hér, stækki starfsemi sína og nái árangri. En þegar þau njóta góðs af orkuauðlindum og mannauði New York gerum við þá kröfu að þau verndi auðlindir okkar og leggi sitt af mörkum til samfélaganna,“ sagði Hochul. Hún boðaði jafnframt að hún hyggist beita sér fyrir lagabreytingum til að afnema undaþágur stórra gagnavera frá söluskatta. Hochul hefur falið embættismönnum ríkisins að búa til almennan ramma um mat á umhverfisáhrifum til að tryggja að öll ný gagnaver sem tekin verða í notkun uppfylli „samræmda staðla“. Jafnframt eigi að meta hugsanleg umhverfisáhrif af uppbyggingu og rekstri gagnavera í ríkinu. Samkvæmt skrifstofu Hochul verður tímabundna banninu aflétt þegar ríkið hefur tekið þessa staðla í notkun.

Share this article