Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Kynjamisrétti stærsta mannréttindaáskorun samtímans

Read Full Article →

António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir að tími sé kominn til þess að efla jafnrétti sem sé einn stærsti drifkraftur sjálbærrar þróunar og friðar. Þetta segir hann í tilefni alþjóðlegs baráttudags kvenna í dag. Hvað er alþjóðlegur baráttudagur kvenna? Alþjóðlegur baráttudagur kenna er haldinn hátíðlegur 8. mars ár hvert. Deginum er ætlað að fagna framförum í jafnréttismálum, vekja athygli á kynbundnu ofbeldi og berjast fyrir auknum réttindum kvenna um allan heim. Í yfirlýsingu greinir Guterres frá átta aðgerðum, innblásnum af eigin reynslu og starfi Sameinuðu þjóðanna, sem hann telur nauðsynlegar til þess að efla réttindi kvenna og ná markvissum árangri í jafnréttisbaráttunni. Aðgerðirnar sem hann leggur til eru af ólíkum toga en allar eiga þær sammerkt að snúa að aukinni valdeflingu og bættri stöðu kvenna um allan heim. Átta aðgerðir í þágu jöfnuðar Guterres imprar meðal annars á mikilvægi þess að jafna valdaójafnvægi innan ólíkra stofnana. „Kynjajafnrétti er spurning um völd. Þegar völdum er deilt eykst frelsið.“ Framkvæmdastjórinn segir einnig að jafnrétti skuli sett í forgang , sérstaklega þegar komi að stjórnunarstörfum. Auk þessa þurfi að sjá til þess að konur fái sæti við borðið í friðarsamningaviðræðum. Þær hafi að mestu verið útilokaðar frá samningaborðinu til þessa þrátt fyrir að bera gjarnan þyngstu byrðar stríða. Hann bendir á að fjárfesting í menntun stúlkna og í stefnumálum sem styðji við fjölskyldur skili óvenju miklum arði. Slíkar aðgerðir leggi grunninn að því að loka bilinu á milli kynjanna og geti jafnframt aukið þjóðartekjur um allt að 20%. Þá segir Guterres að binda þurfi enda á lagalega mismunun gagnvart konum og kynbundið ofbeldi. Hvort tveggja sé óásættanlegt og verði þjóðir heimsins að skuldbinda sig til að afnema lög sem mismuni konum og fordæma kynbundið ofbeldi undir öllum kringumstæðum. Hann bætir því við að tækniyfirvöld og stjórnvöld verði að vinna að því að vinna gegn vaxandi kvenhatri á netinu og að gera verði meira til að fjarlægja áskoranir sem stúlkur standa frammi fyrir á sviði vísinda og tækni. Loks mælist Guterres til þess að kynjasjónarmið verði innleidd í umhverfis- og loftslagsstefnur . Loftslagsbreytingar séu oft kynjaðar og auk þess séu konur í leiðandi í loftslagslausnum.

Share this article