„Hér hvílir amma, eða fæturnir á henni. Það er ekki mikið ..., það var svona smá eftir af ösku,“ segir Aðalbjörg Jónsdóttir. Hún segir frá því hvernig gröf ömmu hennar var opnuð að nóttu til í Sóllandi í Fossvogskirkjugarði í Reykjavík í fyrrasumar og stór hluti öskunnar af henni tekinn úr duftkeri. Amma Aðalbjargar hét Kristjana Jónsdóttir Dinse. Daginn eftir sáust verksummerki um uppgröftinn. Eftir að kerið hafði verið brotið upp og öskupokinn í því tæmdur að mestu var því komið fyrir aftur í gröfinni og mokað var yfir og moldin sléttuð. Starfsfólk Kirkjugarða Reykjavíkur aðstoðaði ættingja konunnar sem er jörðuð þar við að grafa duftkerið aftur upp til að kortleggja verknaðinn. Svo var kerfið grafið niður aftur segir Aðalbjörg og heldur áfram að lýsa atburðarásinni. „22. júní 2025 í skjóli nætur. Ég fæ símtalið 23. júní, frá pabba, þar sem hann tilkynnir mér að amma hefði verið grafin upp úr kirkjugarðinum. [...] Það er farið hér ofan í leiðið, þessa vígðu gröf, og það er búið að brjóta upp kerið og rífa innsiglið af pokanum og askan greinilega bara farin,“ segir hún. Rætt er við Aðalbjörgu um þetta mál í fréttaskýringaþættinum Þetta helst í dag en hann er á dagskrá Rásar 1 að loknum hádegisfréttum. Málið kært til lögreglunnar Faðir Aðalbjargar og sonur Kristjönu, Jón Sigurbjörn Ólafsson, kærði málið til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir Aðalbjörg. Meint brot gegn grafarhelgi er meint brot gegn almennum hegningarlögum. Í lögunum stendur orðrétt: „Ef nokkur raskar grafarhelgi eða gerist sekur um ósæmilega meðferð á líki, þá varðar það sektum eða fangelsi allt að 6 mánuðum.“ Ingvar Stefánsson sem er framkvæmdastjóri kirkjugarða Reykjavíkur segir í viðtali við fréttastofu að umrætt mál hafi komið upp í fyrra og að það sé án hliðstæðu hér á landi svo hann viti til. Kristjana Jónsdóttir Dinse fæddist árið 1943 og lést í nóvember árið 2024. Hún var þrígift og átti börn á Íslandi og í Bandaríkjunum, meðal annars áðurnefndan Jón Sigurbjörn. Dinse-nafnið stafar af því að bandarískur eiginmaður hennar var með eftirnafnið Dinse. Kristjana starfaði sem hárgreiðslumeistari á Íslandi og í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Hún var uppalin á Raufarhöfn á Melrakkasléttu og var sagt frá jarðarför hennar á Facebook-síðu þorpsins í desember árið 2024. Aska hennar var svo sett niður í Sóllandi í apríl 2025. Segir fjölskylduna ekki sætta sig við niðurstöðuna Aðalbjörg Jónsdóttir segir að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafi fellt rannsókn málsins niður í janúar á þessu ári. Eftir þetta hafi faðir hennar kært þá niðurstöðu til ríkissaksóknara. Embætti ríkissaksóknara staðfesti niðurstöðu lögreglunnar að fella rannsókn málsins niður samkvæmt því sem segir í svari frá Önnu Barböru Andradóttur saksóknara. Í svari Önnu Barböru segir orðrétt: „Ríkissaksóknari staðfesti ákvörðun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu að hætta rannsókn í umræddu máli.“ Í rökstuðningi fyrir niðurfellingunni kemur fram að lögreglu hafi ekki tekist að ná tali af hinum grunuðu í málinu og að ekki séu forsendur til þess að halda rannsókn málsins áfram. Í málinu liggi ekki endanlega fyrir hver gróf upp jarðneskar leifar Kristjönu Jónsdóttur Dinse og af hverju. Ríkissaksóknari segir í bréfi sínu að málið sé á þessu stigi óupplýst og að gerandinn í því sé óþekktur. Í bréfi ríkissaksóknara kemur hins vegar jafnframt fram að komi fram ný gögn í málinu sé hægt að opna rannsóknina aftur. Þar segir líka að engar öryggismyndavélar séu í Sóllandi og að engin vitni hafi verið að því þegar gröfin var opnuð. Aðalbjörg segir að faðir hennar sé að skoða næstu skref í málinu og hvort einhver farvegur sé fyrir því að kæra niðurfellingu lögreglu og ríkissaksóknara á málinu. Hún segir að fjölskyldan sætti sig ekki við þessa niðurstöðu.