Dómstóll í Hong Hong dæmdi í morgun tvo aðgerðasinna seka um að hafa kynt undir niðurrifsstarfsemi gegn kínverska ríkinu með því að skipuleggja árlega minningarathöfn um blóðugar aðgerðir stjórnvalda gegn mótmælendum á Tianamen-torgi árið 1989. Þeir Lee Cheuk-yan og Chow Hang-tung hefðu hvatt aðra til að skipuleggja eða taka þátt í því að grafa undan ríkisvaldinu og stjórnarskrá Kína. Refsing þeirra verður ákveðin á næstu dögum en þeirra gæti beðið allt að tíu ára fangelsi. Tvímenningarnir hafa setið á bak við lás og slá síðan þeir voru ákærðir á grundvelli öryggislaga Hong Kong árið 2021. Síðan lögin tóku gildi 2020 hafa allar minningarathafnir í Hong Kong verið stranglega bannaðar.