Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Kínverjar fangelsa lýðræðissinna

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 22.8.2026 | 11:50 Kínverjar fangelsa lýðræðissinna Kona sýnir samstöðu með Lee Cheuk-yan og Chow Hang-tung sem eiga yfir höfði sér tíu ára fangelsi. AFP Gunnlaugur Snær Ólafsson [email protected] Setja bókamerki Tveir fyrrverandi leiðtogar samtaka sem stóðu að árlegri kertaljósavöku til minningar um fjöldamorðin á Torgi hins himneska friðar árið 1989 voru í gær fundnir sekir um að hvetja til undirróðurs gegn stjórnvöldum í Kína. AP-fréttaveitan greinir frá þessu. Lee Cheuk-yan og Chow Hang-tung, sem bæði gegndu forystuhlutverki í Bandalagi Hong Kong til stuðnings ættjarðarlegum lýðræðishreyfingum í Kína, voru ákærð árið 2021 samkvæmt hinum umdeildu þjóðaröryggislögum sem kínversk stjórnvöld þröngvuðu upp á sjálfstjórnarhéraðið Hong Kong. Dómararnir, sem skipaðir voru af kínverska kommúnistaflokknum, töldu að krafa bandalagsins um „endalok einsflokksræðis“ hefði í raun falið í sér ólöglega hvatningu til að steypa forystu kommúnistaflokksins af stóli, ekki einungis kröfu um lýðræðisumbætur. Bæði neituðu sök og eiga nú yfir höfði sér allt að tíu ára fangelsi. Kertaljósavakan bönnuð 2020 Málið er talið enn eitt dæmið um hvernig eitt sinn öflug lýðræðishreyfing borgarinnar hefur nánast verið lögð í rúst frá því að þjóðaröryggislögin tóku gildi árið 2020. Í meira en þrjá áratugi sóttu tugþúsundir manna minningarathöfnina árlega. Var þetta eina minningarathöfnin um mörðin á Torgi hins himneska friðar sem leyfð voru á kínversku yfirráðasvæði, enn gildir algjört bann á meginlandi Kína við því að minnast á atburðina. Yfirvöld bönnuðu kertaljósavökuna fyrst árið 2020 undir yfirskini aðgerða til að stemma stigu við covid-faraldrinum, en hún hefur ekki verið leyfð síðan. Staðurinn þar sem hún fór áður fram er nú notaður undir hátíðahöld á vegum hópa sem hliðhollir eru stjórn kommúnistaflokksins. Ákæruliðurinn sem beitt var gegn Lee og Chow, undirróður, hefur lengi verið notaður á meginlandi Kína til að þagga niður í mannréttindalögfræðingum, aðgerðasinnum og menntamönnum. Þar á meðal er Nóbelsverðlaunahafinn Liu Xiaobo sem lést á meðan hann sat af sér ellefu ára fangelsisdóm. Frá 2020 hafa hundruð manna verið handtekin á grundvelli laganna, þar á meðal aðgerðasinnar, fyrrverandi þingmenn og blaðamenn. Meðal annars hinn 78 ára gamli fjölmiðlamógúll Jimmy Lai, sem var dæmdur í tuttugu ára fangelsi fyrr á þessu ári. Fjölmiðlum með yfirlýsta stefnu til stuðnings lýðræðisumbótum hefur verið lokað með valdi, kosningaréttur hefur verið skertur verulega og stjórnmálaflokkum sem stutt hafa umbætur hefur fækkað ört, margir hverjir leystir upp undir þrýstingi stjórnvalda. Chow Hang-tung Þrengt að sjálfræði Á næsta ári verða liðin 30 ár frá því að Bretland afhenti Kína yfirráð yfir Hong Kong, en fyrir það hafði borgin verið hluti af breska heimsveldinu í 156 ár. Afhending Hong Kong byggðist á samningum sem fólu í sér að Kína hét því að varðveita í fimmtíu ár stjórnkerfi Hong Kong, þar með talið frjálst hagkerfi, frjálsar þingkosningar, málfrelsi, fundafrelsi og sjálfstætt dómskerfi. Fyrirkomulagið var nefnt „eitt land, tvö kerfi“ og byggðist á samkomulagi Breta og Kínverja frá 1984 og átti að tryggja Hong Kong víðtækt sjálfræði. Raunin varð hins vegar allt önnur. Kínversku alræðisöflin hafa sífellt þrengt að þessu sjálfræði. Lee Cheuk-yan Var áður viðskiptamiðstöð Í yfirlitsgrein sinni, sem birt var snemma á þessu ári, rekur bandaríska hugveitan Council on Foreign Relations (CFR), eða utanríkismálaráðið á íslensku, þróunina í Hong Kong. Bendir CFR á að viðbrögð ríkja við þessum samningsbrotum hafi verið afar ólík. Bandaríkin, Bretland, Kanada og Evrópusambandið eru meðal þeirra sem hafa fordæmt að gengið sé á borgaraleg réttindi fólks í Hong Kong. Jafnframt hafa ríki gripið til refsiaðgerða, meðal annars með því að afturkalla erindreka til Hong Kong og bjóða íbúum sem vilja flýja landvistarleyfi. Á sama tíma hafa tugir annarra ríkja – einkum þau sem taka þátt í innviðaáætlun Kína (Belti og braut) – lýst yfir stuðningi við þjóðaröryggislögin. CFR bendir jafnframt á að þrengingin að frelsi borgaranna hafi haft umfangsmiklar efnahagslegar afleiðingar fyrir Hong Kong. Í 70 ár var borgin einhver mikilvægasta miðstöð viðskipta á heimsvísu, en frá setningu þjóðaröryggislaganna hafa alþjóðleg fyrirtæki í auknum mæli flutt starfsemi til Singapúr og Tókýó og hlutabréfamarkaðurinn hefur dregist saman. Það er því óljóst hverju íbúar Hong Kong hafa að fagna á næsta ári, en ekki er ósennilegt að kínverski kommúnistaflokkurinn haldi upp á afmæli yfirráðaskiptanna. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Jökulhlaupi í Múlakvísl lokið Ungur Íslendingur semur við sænska stóliðið Kínverjar fangelsa lýðræðissinna Hull - Man. Utd, staðan er 1:0 Ísland borgi fyrir inngöngu Svartfjallalands „í besta falli“ Umræðan Auðveldasta tungumálið AGS: Ríkisfjármálin vinna gegn verðbólgu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Embætti forstjórans ekki auglýst „Á sama tíma er verið að pynta mann til ólífis“ Skúli Mogensen: Ég segi nei! Starfsmenn Símans sögðust hafa verið blekktir Mest lesið Í gær Í vikunni Embætti forstjórans ekki auglýst Fundurinn magnaður og enginn þurfi að skammast sín Tjónið varð um borð: Ræða aukinn kostnað ríkisins ESB fallist ekki á rauðu strikin Utanríkisráðuneytið orðið að áróðursdeild Tvær Hollywoodmyndir í tökum hér Skúli Mogensen: Ég segi nei! Kyrrsett vegna 10 milljóna kröfu Aðildarviðræður setji Ísland í allsherjarbiðstöðu Gera allt til að finna farangur Ásgeirs Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Alda tekin að rísa úr Fossvoginum Umferðaröngþveiti í uppsiglingu Gröf opnuð, duftker brotið upp og ösku stolið „Gríðarleg skattalækkun“ Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna 100 þúsund manna herlið mætir Íslandi Starfsmenn Símans sögðust hafa verið blekktir Kristín skipuð sýslumaður: Landið eitt umdæmi Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Nýjast á mbl.is » Jökulhlaupi í Múlakvísl lokið Ungur Íslendingur semur við sænska stóliðið Kínverjar fangelsa lýðræðissinna Hull - Man. Utd, staðan er 1:0 Ísland borgi fyrir inngöngu Svartfjallalands „í besta falli“ Umræðan Auðveldasta tungumálið AGS: Ríkisfjármálin vinna gegn verðbólgu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sjávarafurðir 40% af útflutningi 100 þúsund manna herlið mætir Íslandi „Á sama tíma er verið að pynta mann til ólífis“ Starfsmenn Símans sögðust hafa verið blekktir Mest lesið Í gær Í vikunni Embætti forstjórans ekki auglýst Fundurinn magnaður og enginn þurfi að skammast sín Tjónið varð um borð: Ræða aukinn kostnað ríkisins ESB fallist ekki á rauðu strikin Utanríkisráðuneytið orðið að áróðursdeild Tvær Hollywoodmyndir í tökum hér Skúli Mogensen: Ég segi nei! Kyrrsett vegna 10 milljóna kröfu Aðildarviðræður setji Ísland í allsherjarbiðstöðu Gera allt til að finna farangur Ásgeirs Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Alda tekin að rísa úr Fossvoginum Umferðaröngþveiti í uppsiglingu Gröf opnuð, duftker brotið upp og ösku stolið „Gríðarleg skattalækkun“ Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna 100 þúsund manna herlið mætir Íslandi Starfsmenn Símans sögðust hafa verið blekktir Kristín skipuð sýslumaður: Landið eitt umdæmi Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vita enn ekki um töskurnar tveimur vikum seinna Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur

Share this article