Þrír erlendir sérfræðingar hafa verið fengnir til þess að leggja hlutlaust mat á mögulegar aðgerðir til að ná upp jarðneskum leifum Lúðvíks Péturssonar sem lést í vinnuslysi þegar hann féll í sprungu í Grindavík í janúar 2024. Morgunblaðið greinir frá. Sérfræðingarnir þrír voru fengnir til þess að leggja fram hlutlaust mat sitt á minnisblaði verkfræðistofunnar COWI um hvaða aðferðir hentuðu best til að komast að líki Lúðvíks. Í minnisblaði COWI kom fram að best væri að síga eftir honum. Það væri betri kostur en að grafa í jörð eða nota sprengjur. Meta hvort og hvernig aðgerðum verði best háttað Sérfræðingunum er falið það hlutverk að meta hvort og þá hvernig mögulegum björgunaraðgerðum verði best háttað. Margréti Kristínu Pálsdóttur, lögreglustjóra á Suðurnesjum, hefur verið falið að vinna heildstætt mat á málinu. Viðgerðir við húsið þar sem Lúðvík féll í sprunguna eru á framkvæmdaáætlun í haust og stefnt er að því að taka ákvörðun um hvort ráðist verði í aðgerðir til að ná líki Lúðvíks upp fyrir þann tíma. Fjölskyldu Lúðvíks er umhugað að líkamsleifar hans verði sóttar í sprunguna.