Þrír erlendir sérfræðingar mátu mögulegar aðgerðir til að ná líki Lúðvíks upp. Í maí fékk lögreglustjórinn á Suðurnesjum minnisblað frá verkfræðistofunni COWI sem lagði mat á aðstæður á vettvangi í Grindavík. Margrét Kristín Pálsdóttir, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segir að í minnisblaðinu komi fram að ef ákveðið væri að fara í slíka leit þyrfti að áfangaskipta framkvæmdinni. „Á sama tíma er áréttað í minnisblaðinu að það sé á ábyrgð þess aðila sem ber ábyrgð á leitinni að framkvæma sérstakt áhættumat á því hvort ráðast skuli í slíkar aðgerðir og þá með hvaða skilyrðum.“ Áhættumatið er í höndum lögreglu og er meðal annars gert með aðstoð erlendu sérfræðinganna. Svæðið við sprunguna er á framkvæmdaáætlun í haust. Margrét vonar að ákvörðun liggi fyrir sem fyrst og að unnið sé hratt en með fagmennsku að leiðarljósi. Ljóst að mannslífum verði ekki stefnt í hættu Lögregla skoðar málið ítarlega og segir Margrét það til að mynda gert vegna þess að fjölskylda Lúðvíks vilji fá jarðneskar leifar hans heim. „Það hafa allir samúð með þeirri stöðu sem aðstandendur eru í. Allt samfélagið í Grindavík hefur hagsmuna að gæta af því að fá úr þessu skorið, sem og viðbragðsaðilar sem hafa komið að þessu máli. Þannig að það eru miklir hagsmunir undir.“ Margrét ítrekar þó að það sé alveg skýrt að lífi annarra við slíka leit verði ekki stefnt í hættu. En ég verð að ítreka að það er alveg skýrt að lífi annarra við slíka leit verður ekki stefnt í hættu. Von er á niðurstöðum frá erlendu sérfræðingunum á næstunni.