Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Akademían: fimm með tekjur yfir þrjár milljónir

Read Full Article →

Þóranna Jónsdóttir, lektor við HR og stjórnarmaður hjá Veritas, er tekjuhæst skólafólks samkvæmt úttekt Frjálsrar verslunar. Útsvarsskyldar tekjur hennar námu rúmlega 3,5 milljónum króna á mánuði á síðasta ári, miðað við greitt útsvar. Ingileif Jónsdóttir, prófessor emerita í ónæmisfræði, kemur næst á listanum með rúmlega 3,4 milljónir króna á mánuði miðað við útsvarsskyldar tekjur. Víðir Smári Petersen, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, er þriðji með rúmlega 3,3 milljónir króna á mánuði. Tekjur Þórönnu lækkuðu milli ára, úr 4,596 milljónum króna á mánuði í 3,485 milljónir. Tekjur Ingileifar jukust lítillega, úr 3,379 milljónum í 3,474 milljónir króna á mánuði. Mest var aukningin hjá Víði Smára, en tekjur hans fóru úr 1,999 milljónum í 3,323 milljónir króna á mánuði miðað við greitt útsvar. Gylfi Zoega, hagfræðiprófessor við Háskóla Íslands, er fjórði á listanum með rúmlega 3,1 milljón króna á mánuði. Kristín Huld Haraldsdóttir, læknir og dósent við læknadeild Háskóla Íslands, situr í fimmta sæti listans með rúmlega 3 milljónir króna á mánuði miðað við greitt útsvar. Hægt er að kaupa Tekjublaðið í forsölu hér og fá það heimsent. Að auki verður blaðið til sölu í öllum helstu verslunum landsins. Vegna útgáfu Tekjublaðsins er nauðsynlegt að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2025 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Hafa verður í huga að inni í tekjum getur verið einskiptisgreiðsla vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði.

Share this article