Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Örn Árnason tekjuhæstur meðal leikara og leikstjóra

Read Full Article →

Örn Árnason er tekjuhæstur íslenskra leikara og leikstjóra samkvæmt úttekt Frjálsrar verslunar. Útsvarsskyldar tekjur hans námu rúmlega 2 milljónum króna á mánuði á síðasta ári, miðað við greitt útsvar. Ólafur Darri Ólafsson kemur næstur á listanum með ríflega 1,9 milljónir króna á mánuði miðað við útsvarsskyldar tekjur. Þar á eftir kemur leikstjórinn Baltasar Kormákur Baltasarsson með rúmlega 1,5 milljón króna á mánuði. Tekjur Arnar jukust milli ára, úr 1,752 milljónum króna á mánuði í 2,022 milljónir. Tekjur Ólafs Darra lækkuðu hins vegar úr 2,332 milljónum í 1,933 milljónir króna á mánuði. Tekjur Baltasars Kormáks jukust lítillega, úr 1,515 milljónum í 1,544 milljónir króna á mánuði. Sigurður Sigurjónsson er fjórði á listanum með tæplega 1,5 milljón króna á mánuði, en Brynhildur Guðjónsdóttir, leikkona og fyrrverandi leikhússtjóri, er í fimmta sæti með tæplega 1,5 milljón króna á mánuði. Leikstjórinn Hannes Þór Halldórsson rekur svo lestina af þeim sex sem hæstar tekjur hafa á listanum, með rúmlega 1,2 milljónir króna á mánuði. Hægt er að kaupa Tekjublaðið í forsölu hér og fá það heimsent. Að auki verður blaðið til sölu í öllum helstu verslunum landsins. Vegna útgáfu Tekjublaðsins er nauðsynlegt að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2025 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Hafa verður í huga að inni í tekjum getur verið einskiptisgreiðsla vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði.

Share this article