Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Kristján snýr aftur í Kastljósið

Read Full Article →

Fjölmiðlamaðurinn Kristján Kristjánsson hefur verið ráðinn sem einn af umsjónarmönnum Kastljóss. Hann gegndi því hlutverki í sex ár upp úr aldamótum og snýr því aftur eftir um tveggja áratuga fjarveru. Hann hefur störf 1. september. Kristján hefur starfað í fjölmiðlum i þrjá áratugi, síðast í tíu ár sem umsjónarmaður Sprengisands á Bylgjunni. Þar áður var hann yfirmaður samskipta hjá Landsbankanum, upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar fyrstu mánuðina eftir hrun og forstöðumaður samskipta hjá FL Group. Á árunum 1986-2006 kom hann víða við á fjölmiðlum, var meðal annars blaðamaður á Viðskiptablaðinu. Rúnar til liðs við Spegilinn Þá hefur einnig verið gengið frá ráðningu fréttamanns í fréttaskýringaþáttinn Spegilinn. Rúnar Pálmason verður einn umsjónarmanna Spegilsins og hefur störf í byrjun september. Hann starfaði hjá Morgunblaðinu í um 15 ár, til ársins 2014 þegar hann tók við sem vefritstjóri og síðar upplýsingafulltrúi Landsbankans. Hann lét af því starfi í sumar.

Share this article