Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Kristján og Rúnar til RÚV

Read Full Article →

Fjölmiðlamaðurinn Kristján Kristjánsson hefur verið ráðinn sem einn af umsjónarmönnum Kastljóss. RÚV greinir frá þessu en Kristján gegndi því hlutverki í sex ár upp úr aldamótum og snýr því aftur eftir tveggja áratuga fjarveru. Kristján hefur starfað í fjölmiðlum síðan 1986 og var meðal annars blaðamaður á Viðskiptablaðinu. Hann hefur síðustu tíu árin starfað sem umsjónarmaður Sprengisands á Bylgjunni og var þar áður yfirmaður samskipta hjá Landsbankanum. Kristján var einnig upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar fyrstu mánuðina eftir hrun og forstöðumaður samskipta hjá FL Group. Samhliða ráðningu Kristjáns hefur Rúnar Pálmason verið ráðinn fréttamaður í fréttaskýringaþættinum Speglinum. Hann starfaði hjá Morgunblaðinu í 15 ár en tók síðan við sem vefritstjóri og síðar upplýsingafulltrúi Landsbankans árið 2014.

Share this article