Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Rjómi íslenskrar tónlistar á Tónaflóði Rásar 2

Read Full Article →

Nú eru landsmenn farnir að tína til hlaupagallann fyrir morgundaginn því fjölmargir hefja daginn á að þeysast um borgina í Reykjavíkurmaraþoni. Að hlaupi loknu hefst þrusudagskrá um alla Reykjavík; tónlist, föndur, leiklist og hinar ýmsu uppákomur. Hápunkturinn er auðvitað Tónaflóð, stórtónleikar Rásar 2. Eins og venjulega fara tónleikarnir fram á Arnarhóli og þeir hefjast klukkan 19. Viðburðurinn verður í beinni útsendingu á Rás 2 og á sjónvarpsskjánum á RÚV. Arnarhóll breytist í stærsta dansgólf landsins þegar nýjar raddir og stærstu stjörnurnar stíga á svið áður en kvöldið endar með hinni klassísku flugeldasýningu klukkan 22. Þau sem fram koma eru meðal annars ólíkindatólin JóiPé og Króli sem er eitt besta dúó Íslandssögunnar. Þá kemur fram hin seiðmagnaða Árný Margrét sem dáleiðir með sinni frábæru rödd og eintakri lagasmíð. Spacestation er án efa eitt óvæntasta og svalasta band landsins. Daði Freyr hefur verið æðislegur síðan við kynntumst honum í Söngvakeppninni árið 2017 og það er ótrúlegt hvernig hann toppar sig á hverju. Páll Óskar og Benni Hemm Hemm eru auðvitað þjóðargersemir sem munu án nokkurs vafa gjörsamlega trylla hólinn. Það er sama þótt það rigni eða blási, með Palla og Benna er alltaf risastór sól í hjarta.

Share this article