Menningarnótt er í dag. Einn af hápunktum dagskrárinnar eru tónleikarnir Tónaflóð Rásar tvö, sem hefjast á Arnarhóli klukkan 19:00. Tónleikarnir eru í beinni útsendingu bæði í sjónvarpi og á Rás 2. Meðal þeirra sem koma fram á tónleikunum eru Jói P. og Króli, Árný Margrét, Daði Freyr, Benni Hemm Hemm og Páll Óskar. Siggi Gunnars á DJ-græjunum Arnarhóll breytist því í stærsta dansgólf landsins áður en kvöldið endar með flugeldasýningu klukkan 22:00. Guðrún Dís Emilsdóttir mun, ásamt Atla Fannari Bjarkasyni, sjá um að stemningin á Arnarhóli í kvöld skili sér til áhorfenda heima í stofu. „Siggi Gunnars sér um að halda uppi stuðinu á hólnum, verður hérna með DJ-græjurnar,“ segir Guðrún Dís. Guðrún Dís vonar að fólk láti rigningu og smá kulda ekki stoppa sig í að njóta tónleikanna á Arnarhóli í kvöld. „Fólk verður auðvitað bara að klæða sig vel. Við búum auðvitað að því að við eigum flest einhverja skeljajakka eða skeljabuxur, eða pollagalla. Og svo eigum við auðvitað líka bara gömlu góðu lopapeysuna þannig við hvetjum bara fólk til að klæða sig vel.“