Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Starfsmenn Símans gefa skýrslur í Reykholtsmálinu

Read Full Article →

Fimmti dagur aðalmeðferðar í Reykholtsmálinu svokallaða er hafinn og í dag verða teknar skýrslur af íbúum í Reykholti en einnig starfsmönnum Símans ehf. Fjallað hefur verið um að brotaþoli hafi verið færður inn í verslun Símans af sakborningum svo hægt væri að setja upp rafræn skilríki í síma hans. Þau hafi svo verið notuð til þess að hafa af honum fé. Allir þeir sem sæta ákæru í málinu hafa gefið skýrslu og var skýrsla tekin af brotaþola í gær. Þá var einnig rætt við fyrrverandi eiginkonu hans og dóttur ásamt því að eiginkona eins ákærða gaf skýrslu. Sex Íslendingar, fimm karlar og ein kona, eru ákærð fyrir að halda manninum föngnum á heimili sínu í Reykholti í Bláskógabyggð og beita hann harkalegu ofbeldi til þess að hafa af honum fé í apríl 2024. Framhald aðalmeðferðar er á dagskrá Héraðsdóms Suðurlands alla næstu viku. Hins vegar er búist við því að skýrslutökum gæti lokið á mánudag og að málflutningur taki þá við. Nokkuð ósamræmi var á milli þess sem brotaþoli sagði í skýrslu sinni í gær og því sem ákærðu hafa lýst í sínum skýrslum. Lesa má betur um skýrslur brotaþola í færslunni hér fyrir ofan. Hann sagði þátt margra hinna ákærðu mun stærri en þeir hafa lýst fyrir dómi. Nokkuð ósamræmi var í frásögn brotaþola og þeirra gagna sem lögð hafa verið fram.

Share this article