Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

For­stjórar flug­félaganna: Bogi efstur

Read Full Article →

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, var tekjuhæsti forstjóri stærstu flugfélaga landsins árið 2025. Hann var með ríflega 5,7 milljónir króna á mánuði í tekjur miðað við greitt útsvar. Til samanburðar var hann með 5,2 milljónir á mánuði árið áður. Baldvin Már Hermannsson, forstjóri Air Atlanta, var með rúmlega 5,4 mánuði í fyrra, samanborið við tæplega 5,3 milljónir á mánuði árið 2024. Einar Örn Ólafsson, sem var forstjóri Play fram að gjaldþroti flugfélagsins í lok september 2025, var með tæplega 4,3 milljónir króna í tekjur á mánuði í fyrra. Einar Örn var á dögunum ráðinn forstjóri First Water. Hægt er að kaupa Tekjublaðið í forsölu hér og fá það heimsent. Að auki verður blaðið til sölu í öllum helstu verslunum landsins. Vegna útgáfu Tekjublaðsins er nauðsynlegt að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2025 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Hafa verður í huga að inni í tekjum getur verið einskiptisgreiðsla vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði.

Share this article