Þórhallur Haukur Reynisson, fyrrverandi flugrekstrarstjóri Icelandair, er tekjuhæstur flugfólks samkvæmt úttekt Frjálsrar verslunar. Tekjur hans námu að meðaltali rúmum 10,4 milljónum króna á mánuði á síðasta ári, miðað við greitt útsvar. Einar Dagbjartsson, flugstjóri hjá Icelandair, kemur næstur á listanum með rúmlega 7,1 milljón króna á mánuði miðað við útsvarsskyldar tekjur. Jón Hörður Jónsson, flugstjóri hjá Icelandair og formaður ÖFÍA, er þriðji með rúmlega 5,4 milljónir króna á mánuði. Tekjur Þórhalls jukust verulega milli ára, úr 4,082 milljónum króna á mánuði í 10,464 milljónir. Tekjur Einars jukust einnig mikið, úr 2,917 milljónum í 7,128 milljónir króna á mánuði. Tekjur Jóns Harðar jukust úr 3,431 milljón í 5,422 milljónir króna á mánuði. Hafsteinn Pálsson, flugstjóri hjá Icelandair, er fjórði á listanum með rúmlega 5,1 milljón króna á mánuði. Björn Brekkan Björnsson, flugstjóri Landhelgisgæslunnar, er fimmti með rúmlega 4,2 milljónir. Hátt tekjustig meðal tíu efstu Tekjustigið er hátt meðal tíu efstu á listanum, en tekjur þeirra voru allar í kringum 4 milljónir króna á mánuði eða hærri, miðað við greitt útsvar. Í sætum sex til tíu eru Sigurður Heiðar S. Wiium, yfirflugstjóri Landhelgisgæslunnar, Jón Magnús Sveinsson, flugstjóri hjá Icelandair, Hjalti Guðmundsson, flugumferðarstjóri, og Linda Gunnarsdóttir, yfirflugstjóri hjá Icelandair, öll með rúmlega 4 milljónir króna á mánuði. Walter Hallgrímur Ehrat, flugstjóri Landhelgisgæslunnar, rekur listann með 3,959 milljónir króna á mánuði. Hægt er að kaupa Tekjublaðið í forsölu hér og fá það heimsent. Að auki verður blaðið til sölu í öllum helstu verslunum landsins. Vegna útgáfu Tekjublaðsins er nauðsynlegt að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2025 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Hafa verður í huga að inni í tekjum getur verið einskiptisgreiðsla vegna úttektar á séreignarsparnaði hjá lífeyrissjóði.