Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Bandaríska ríkið niðurgreiðir slátrun villihesta

Read Full Article →

Bandarísk stjórnvöld hafa á undanförnum misserum stóraukið sölu á friðuðum villihestum á lágu verði til einkaaðila. New York Times greinir frá því að sala á villihestum hafi meira en tvöfaldast árið 2025 upp í 3.700 hesta. Dýraverndarsamtök segja kerfið hafa skapað arðbært viðskiptafyrirkomulag þar sem hægt er að kaupa hesta fyrir 25 dali, eða um 3.000 krónur, og selja þá áfram. Hestur getur verið allt að 750 dala virði við slátrun. Slátrun villihesta er óheimil samkvæmt bandarískum reglum og banna alríkislög Landstjórnarstofnun Bandaríkjanna (e. Bureau of Land Management) að selja dýr beint til slátrunar. Hestar sem eru seldir í gegnum millilið missa hins vegar alríkisvernd sína við sölu og skapar það lagalega glufu til að selja þá til sláturhúsa í Kanada. Sjá einnig Ítalskar samlokur með hrossakjötbollum Bandarísk stjórnvöld geta varið meira en 3.000 dölum í að handsama einn villihest og koma honum í söluferli en selja hann síðan á 25 dali. Með þessu fyrirkomulagi eru stjórnvöld því að niðurgreiða viðskiptin en aftur á móti sparast kostnaður við að halda og hýsa villihesta til lengri tíma. Það léttir einnig á fjárveitingum til Landstjórnarstofnunarinnar en þegar dýrin færast úr opinberri umsjá eru það einkaaðilar sem sjá um fóðrun, geymslu og umönnun. Um 58 þúsund villihestar eru nú í vörslu stofnunarinnar og kostar um 100 milljónir dala á ári að halda þeim. Stærsti hlutinn af þeim 142 milljónum dala sem stjórnvöld veita stofnuninni á hverju ári fer til villihesta. Bandaríska þingið hefur bannað stofnuninni að verja opinberu fé til að drepa heilbrigða villihesta. Stofnunin getur hins vegar skilgreint hesta sem óættleiðanlega eftir að þeim hefur ítrekað verið boðið nýtt heimili án árangurs. Fyrsti kaupandi skuldbindur sig til að senda hestinn ekki í slátrun eða selja hann vísvitandi til aðila sem hyggst gera það. Selji hann hins vegar hestinn áfram til milliliðar án þess að spyrja um fyrirætlanir hans nær bannið ekki með sama hætti til næsta viðskiptamanns. Þar með getur hesturinn komist löglega inn í aðfangakeðju sláturiðnaðarins.

Share this article