Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ

Read Full Article →

Meirihluti skipulagsráðs Reykjanesbæjar samþykkti í morgun tillögu Sjálfstæðisflokks og Miðflokks um að lækka byggingarréttargjöld á lóðum sveitarfélagsins í 0 krónur á fermetra. Fyrir 150 fermetra íbúðarhúsnæði nemur lækkunin 5.250.000 krónum, að því er kemur fram í tilkynningu frá Reykjanesbæ. Tillagan felur í sér að byggingarréttargjald vegna íbúðarhúsnæðis lækkar úr 35.000 krónum á fermetra í 0 krónur. Jafnframt lækka byggingarréttargjöld vegna iðnaðarbyggðar, verslunar og þjónustu og athafnasvæða úr 6.000 krónum á fermetra í 0 krónur. Breytingin tekur til uppbyggingar á landi í eigu Reykjanesbæjar. Samhliða henni verður unnið að niðurfellingu samþykktar sveitarfélagsins um innviðagjald. Tillagan fer nú áfram til staðfestingar í bæjarstjórn. Fulltrúar minnihlutans í skipulagsráði frá Samfylkingunni og Framsókn kusu gegn tillögunni. Milljóna króna lækkun á kostnaði við uppbyggingu Byggingarréttargjald vegna íbúðarhúsnæðis hefur numið 35.000 krónum á hvern fermetra frá því að samþykkt um innviðagjald tók gildi 4. júní 2024. Fyrir þann sem hyggst byggja 150 fermetra íbúðarhúsnæði hefur gjaldið því numið 5.250.000 krónum. Sá kostnaður fellur niður með breytingunni. „Um er að ræða eina umfangsmestu skattalækkun vegna uppbyggingar á sveitarstjórnarstiginu síðustu ár. Markmiðið er að lækka álögur, ryðja úr vegi hindrunum og gera Reykjanesbæ að eftirsóknarverðasta sveitarfélagi landsins til uppbyggingar.“ Lækkunin nær einnig til atvinnuuppbyggingar. Byggingarréttargjöld vegna iðnaðarbyggðar, verslunar og þjónustu og athafnasvæða lækka úr 6.000 krónum á fermetra í 0 krónur.

Share this article