Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hér eru sko engin leiðindi!

  • What: Discussion about musician Bogomil
  • Impact: No security relevance
Read Full Article →

Arnar Eggert Thoroddssen skrifar: Það er gott að fá Bogomil Font aftur að hljóðnemanum, þennan óstýriláta skálk sem fæddist í Zagreb í gömlu Júgóslavíu við endaðan níunda áratug síðustu aldar. Vinur Bogomils, Sigtryggur Baldursson, nefndi reyndar Ljubljana í samtali við gagnrýnanda á dögunum og víst að öllu, að minnsta kosti flestu, sem heyra má upp á Bogomil ætti að taka með örlítilli klípu af salti. Það sem hófst svo upp úr þessu er æði merkilegt í poppsögulegu tilliti. Það sem rúllaði af stað sem kerskinn, já giska kaldhæðinn brandari jafnvel hjá því gengi sem réð ríkjum í neðanjarðartónlistinni á þeim tíma (Smekkleysugengið), þróaðist út í meginstraumsvinsældir. Ásamt Milljónamæringunum steypti Bogomil norpandi Mörlöndum í kátlegt mambóæði og ekki er það íslenskt mannsbarn að heita má sem getur ekki sungið með í Marsbúa cha cha cha (Ég raulaði það síðast fyrir munni mér í gær og þótti það ekki leiðinlegt). Enda er aldrei leiðinlegt í kringum Bogomil og undirstrikaði hann þá heimspeki með titlinum á fyrstu plötu sinni, Ekki þessi leiðindi. Haf þú ekki áhyggjur af því er plata með Bogomil Font og Greiningardeildinni. Arnar Eggert Thoroddsen rýnir í gripinn sem jafnframt er plata vikunnar á Rás 2. Árið 2006 hitti ég á nefndan vin hans, Sigtrygg, og hann lýsti því fyrir mér að hann hyggðist endurræsa Bogomil það árið, ræsta úr honum árshátíðarlummur eins og „Fly me to the moon“ og vekja upp í honum púkann sem hafði stýrt gjörðum hans í upphafi. Útkoman var stórkostleg, hin frábæra plata Bananaveldið sem hann gerði ásamt tríóinu Flís og um jólin kom svo Majones jól, hátíðarskífa sem unnin var með Samúel J. Samúelssyni og Stórsveit Reykjavíkur þar sem fallegt ruglumbullið fékk að flæða rétt eins og á Bananaveldinu. Bogomil hefur síðan meira og minna verið í kör síðan en snýr nú aftur fyrir tilstilli Greiningardeildarinnar, þar sem fara ektavinir Bogomils og Sigtryggs þeir Guðm. Kristinn Jónsson og Bragi Valdimar Skúlason. Gamli refurinn Bogomil hefur engu gleymt en tónlistarlega liggur til grundvallar kulda-kalypsó hvar smeygt er inn lunknum og ekki svo lunknum skotum á hin ýmsu samfélagsmein. Rýni með gríni eins og Sigtryggur sagði Helga Snæ á Morgunblaðinu. Í titillaginu er til að mynda talað um Bitcoinbræður og í Af hverju geta þessir andskotans karlar aldrei verið til friðs? eina laginu sem Sigtryggur vinur Bogomils semur á plötunni, sýnir Bogomil glettnar tennurnar og færir okkur heimilislega brjálsemi að hætti hússins. Önnur lög koma úr smiðju Braga Valdimars en hann semur auk þess texta ofan í Bogomil og háðsádeilufræðin kann það mæta skáld upp á tíu. Hljómur allur og hljóðfæraleikur er tipp topp, nema hvað, og ég nefni áður ég kveð lagið „Þú stendur alltaf með mér“ sem Bogomil syngur ásamt Emilíönu Torrini. Já, okkar besti getur líka verið mjúkur og ástleitinn ef sá gállinn er á honum. Haf þú ekki áhyggjur af því er eins langt frá leiðindum og hugsast getur og hafði ég sosum aldrei neinar áhyggjur af því! Stjörnur: 4/5

Share this article