Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fær að meðaltali eitt eltihrellamál á borð til sín á fimm daga fresti. Flest málin tengjast heimilisofbeldi og oft fyrrverandi eða núverandi mökum. Jenný Kristín Valberg teymisstýra hjá Bjarkarhlíð, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis, segir helstu birtingarmyndir brota af þessu tagi vera endurtekin óvelkomin samskipti. Hún segir áreitið oft stigmagnast þegar þolandi reynir að slíta ofbeldissambandi. Það geti birst með ýmsum hætti, allt frá símtölum, skilaboðum í gegnum bankafærslur og í að gerandi mæti fyrir utan vinnustað til þess að valda þolanda ónæði í starfi. „Það eru í rauninni engin takmörk fyrir því hvað gerandi gerir í þessu ástandi. Hann hunsar mörk þolenda, ætlar ekki að ljúka sambandinu og þetta verður að þráhyggjuhegðun sem er oft mjög ógnvænleg og mjög hættuleg.“ Rúmlega 100 eltihrellamál til Bjarkarhlíðar á ári Um 110 eltihrellamál koma til Bjarkarhlíðar á ári. Jenný segir þetta vera eina alvarlegustu birtingarmynd ofbeldis í nánum samböndum, þar sem áreitið geti verið merki um að gerandi ætli ekki að sleppa tökum á þolanda. „Þetta er ein af þremur birtingarmyndum sem eru alltaf til staðar þegar gerandi tekur líf þolenda vegna þess að hann lætur ekki að stjórn, hann ætlar ekki að hætta.“ Hún hvetur fólk sem verður fyrir slíku áreiti til að bregðast snemma við og tilkynna málið strax til Bjarkarhlíðar eða til lögreglu. „Það er mikilvægt að skrá þetta og gera áhættumat og reyna að tryggja öryggi þolenda eftir bestu getu og lögreglan hefur margar leiðir til þess að gera það.“ Jenný Kristín Valberg hjá Bjarkarhlíð segir áreitni eltihrella oft stigmagnast þegar þolandi slítur sambandinu og að mikilvægt sé að tilkynna málin snemma.