Evrópumeistaramótið í áhaldafimleikum fer fram í Zagreb í Króatíu um þessar mundir. Keppni í kvennaflokkum fór fram í síðustu viku en í þessari viku hefur verið keppt í karlaflokkum. Í dag er komið að úrslitum á einstökum áhöldum, keppt var á gólfi, bogahesti og í hringjum í gær og í dag eru það hin þrjú áhöldin sem eru á dagskrá, svifrá, tvíslá og stökk. Illia Kovtun, frá Úkraínu sem keppir nú fyrir Króatíu, varð Evrópumeistari í fjölþraut og keppir til að mynda í úrslitum á svifrá og tvíslá í dag. Á morgun lýkur mótinu svo með úrslitum í liðakeppninni. RÚV sýnir beint frá úrslitunum í dag og útsending hefst klukkan 14:25.