Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Sextán ára Evrópumeistari á jafnvægisslá

Read Full Article →

EM kvenna í áhaldafimleikum stendur yfir í Zagreb í Króatíu og í dag var keppt til úrslita á einstökum áhöldum. Hin 16 ára Elena Colas frá Frakklandi vakti einna mesta athygli en hún varð Evrópumeistari á jafnvægisslá og bætti þar með enn einni skrautfjöður í hattinn á sínu fyrsta EM í fullorðinsflokki. Keppni dagsins var í beinni útsendingu á RÚV. Hin 16 ára Elena Colas frá Frakklandi varð í dag Evrópumeistari á jafnvægisslá og vann auk þess til silfurverðlauna í gólfæfingum á EM kvenna í áhaldafimleikum í Króatíu. Á morgun verður keppt í liðakeppni. Colas átti bestu æfinguna á slánni og fékk 13,933 stig. Hún hafði áður unnið brons í fjölþrautinni og staðfestir árangurinn stöðu hennar sem einnar efnilegustu fimleikakonu Evrópu. Manila Esposito frá Ítalíu varð önnur og Angelina Melnikova þriðja. Hin rússneska Melnikova hafði fyrr um daginn orðið Evrópumeistari í stökki með 14,166 stig. Hún vann einnig fjölþrautina á fimmtudag og er ríkjandi heimsmeistari í báðum greinum. Karina Schönmaier frá Þýskalandi varð önnur og Lisa Vaelen frá Belgíu þriðja. Þýska fimleikakonan Helen Kevric fagnaði Evrópumeistaratitli á tvíslá þar sem hún fékk 14,500 stig. Kevric missti naumlega af verðlaunum á EM fyrir tveimur árum og þurfti að draga sig úr keppni í fyrra. Elisa Iorio frá Ítalíu fékk silfur og landa hennar Giulia Perotti brons. Manila Esposito átti síðan bestu gólfæfinguna og fékk 13,700 stig. Hún endurheimti þar með Evrópumeistaratitilinn sem hún vann fyrir tveimur árum en þurfti að sætta sig við silfur í fyrra. Colas bætti þar við silfri og Melnikova tók bronsið. Á morgun, sunnudag, verður keppt í liðakeppni kvenna og hefst bein útsending frá henni klukkan 12:55 á RÚV.

Share this article