Efstu tíu einstaklingarnir í flokki næstráðenda og fleiri voru með um eða yfir 6 milljónir króna í reiknuð mánaðarlaun út frá greiddu útsvari í nýútgefnu Tekjublaði Frjálsrar verslunar. Ágúst Friðrik Hafberg, framkvæmdastjóri hjá Century Aluminum, móðurfyrirtæki Norðuráls, situr í efsta sæti listans með 23,6 milljónir króna á mánuði. Hann tók mikið stökk milli ára en hann var með 10 milljónir á mánuði árið 2024, miðað við greitt útsvar. Davíð Freyr Oddsson, yfirmaður mannauðsmála hjá Marel, situr í öðru sæti á listanum með 15,9 milljónir króna á mánuði. Þar á eftir kemur Heimir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri hjá Alvotech, með 8,5 milljónir króna á mánuði. Hægt er að kaupa Tekjublaðið í forsölu hér og fá það heimsent. Að auki verður blaðið til sölu í öllum helstu verslunum landsins. Vegna útgáfu Tekjublaðsins er nauðsynlegt að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2025 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Hafa verður í huga að inni í tekjum getur verið einskiptisgreiðsla vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði.